Fara í efni

ÍSLE3NN05 - Goð, gyðjur og forynjur – norræn goðafræði

miðaldir, norræn goðafræði, nútíminn

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: 10 einingar á 2. þrepi
Í þessum áfanga verður fjallað um norræna goðafræði og þær heimildir sem við höfum um hinn forna átrúnað. Textar af ýmsum gerðum lesnir, greindir og tengdir við það umhverfi sem þeir spretta úr og áhrif þeirra á aðra texta rædd. Jafnframt verða skoðuð ýmis nútímaverk sem sækja efnivið sinn í eða spretta úr norrænni goðafræði. Nemendur verða þjálfaðir í notkun bókmenntahugtaka og heimildavinnu, auk þess sem þeir kynna sér fræðilegar greinar sem tengjast efninu. Áhersla lögð á fjölbreytt og skapandi verkefni sem reyna á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og mismunandi hæfni nemenda, auka víðsýni og gagnrýna hugsun. Nemendur vinna ýmist hver fyrir sig eða með öðrum.

Þekkingarviðmið

  • upphafi íslenskrar ritmenningar
  • mismunandi tegundum miðaldabókmennta og þekki lykilverk tímabilsins
  • áhrifum norrænnar goðafræði á nútímaverk
  • tengslum norrænnar goðafræði við evrópskar goðsögur
  • algengustu stílbrögðum sem einkenna goðsögur
  • uppbyggingu goðsagna
  • samfélagi, hugmyndafræði og viðhorfum miðaldamanna til heiðins átrúnaðar
  • heimildanotkun í tengslum við verkefnavinnu og gildi mismunandi heimilda
  • orðaforða sem þarf til að lesa helstu verk miðaldabókmennta

Leikniviðmið

  • lesa bókmenntatexta frá miðöldum sér til gagns og gamans
  • greina bókmenntatexta frá miðöldum og fjalla um inntak þeirra
  • greina áhrif goðsagna á nútímaverk
  • beita algengum stílbrögðum í tal- og ritmáli
  • skilja lykilhugtök og mismunandi sjónarhorn í bókmenntum
  • draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum og meta áreiðanleika þeirra
  • ganga frá heimildaverkefnum og nýta sér uppbyggilega gagnrýni annarra til betrumbóta
  • flytja af öryggi lýsingar og kynningar á verkefnum sínum, hver fyrir sig og með öðrum

Hæfnisviðmið

  • skilja, greina og tengja saman bókmenntatexta frá ólíkum tímum
  • skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta
  • taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá afstöðu sína og efasemdir um efnið og komast að rökstuddri niðurstöðu
  • draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta
  • átta sig á samfélagslegum og bókmenntasögulegum skírskotunum, duldum boðskap og hugmyndum
  • beita skýru, vönduðu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
  • velja ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
  • vinna skapandi verkefni í tengslum við námsefnið
  • nýta sér heimildir af ýmsum toga í tengslum við námsefni og verkefnavinnu
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?