Fara í efni

RALV3RT05 - Raflagnir 5

raflagnir, töflusmíði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Nemandinn læri uppbyggingu á húsveitum fyrir allt að 100 A. Heimtaugum að einbýlis- og fjölbýlishúsum og helstu raflögnum og búnaði fyrir ljósa og tenglagreinar. Áhersla er lögð á kunnáttu á varnarráðstöfunum í stærri húsveitum. Farið verður í sérákvæði varðandi raflagnir í einstökum rýmum og staðsetningu á rafdreifiskápum. Sett verður upp aðaltafla, lagnir frá henni m.a. að þriggja fasa hreyfli. Gerða verða mælingar og kostnaðaráætlanir.

Þekkingarviðmið

  • uppbyggingu og virkni varnarráðstafana
  • öryggismælingum á húsveitu
  • reglugerðarákvæðum og stöðlum varðandi neysluveitur
  • mismunandi lágspennukerfum

Leikniviðmið

  • tengja heimtaugar við húsveitur upp að 100 Amper
  • setja upp og tengja aðaltöflu upp að 100 Amper
  • tengja þriggja fasa tengla og klær

Hæfnisviðmið

  • ákveða stærð aðaltöflu
  • mæla hringrásar viðnám, einangrunnarviðnám og fasaröðun
  • gera úttektarskýrslu
  • ákvarða röðun búnaðar í aðaltöflu
  • skila verkinu fagmannalega frá sér
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?