Fara í efni

HJÚK3HM05(AV) - Hjúkrun fullorðinna 3

Hjarta, melting

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Fjallað er um umhyggjuhugtakið og sjálfsumönnun ásamt helstu hjúkrunarkenningum og tengslum þeirra við starfsvettvang. Fjallað er um hjúkrunarferli og faglega hjúkrunarskráningu. Fjallað er um hjúkrun sjúklinga með bráða- og langvinna sjúkdóma sem tengjast eftirtöldum kerfum: hjarta- og æðakerfi, öndunarfærakerfi, meltingarkerfi, þvag- og kynkerfum. Fjallað er um hjúkrun sjúklinga með illkynja sjúkdóma. Í áfanganum er lögð áhersla á tengingu fræðilegrar þekkingar við skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar.

Þekkingarviðmið

  • helstu hjúkrunarkenningum og tengslum þeirra við starfsvettvang
  • umhyggjuhugtakinu og sjálfsumönnun
  • mikilvægi hjúkrunarskráningar
  • áhrifum bráðs og langvinns heilsubrests á sjálfsmynd og líðan skjólstæðinga
  • hjúkrun sjúklinga með sjúkdóma í hjarta- og æðakerfi, öndunarfærakerfi, meltingarkerfi, þvag- og kynkerfum
  • helstu einkennum illkynja sjúkdóma í þeim líffærakerfum sem fjallað er um í lýsingu
  • undirbúningi og eftirmeðferð vegna rannsókna og skurðaðgerða
  • þverfaglegri teymisvinnu í meðferð skjólstæðinga

Leikniviðmið

  • sýna skjólstæðingi og aðstandendum stuðning og umhyggju
  • greina á milli mismunandi hjúkrunarþarfa langveikra, bráðveikra og mikið veikra
  • beita viðeigandi hjúkrunarmeðferð fyrir og eftir aðgerðir og rannsóknir
  • beita ólíkum vinnubrögðum við smitgát eftir eðli sjúkdómsástands
  • veita sjúklingum og aðstandendum faglega umhyggju og stuðning
  • vinna eftir viðurkenndri hjúkrunarskráningu

Hæfnisviðmið

  • meta hjúkrunarþarfir langveikra, bráðveikra og mikið veikra
  • meta og útskýra áhrif bráðs og langvinns heilsubrests á sjálfsmynd og líðan skjólstæðinga
  • bregðast við algengum aukaverkunum meðferðar vegna illkynja sjúkdóma
  • leiðbeina skjólstæðingum með athafnir daglegs lífs
  • velja milli ólíkra vinnubragða við smitgát eftir eðli sjúkdómsástands
  • útskýra algengar aukaverkanir meðferðar vegna illkynja sjúkdóma
  • taka þátt í þverfaglegri vinnu í meðferð skjólstæðinga
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?