Fara í efni

HDAM3FB03(CH) - Dömuklipping 3

Verkleg dömuklipping

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: HDAM3FB03BH
Nemandinn nýtir sér áunna færni frá fyrri stigum námsins til að efla fagmennsku og sjálfstæð vinnubrögð við hönnun og framkvæmd á klippingu. Hann öðlast færni í að greina möguleika og ráðleggja viðskiptavini um val á klippingu með hliðsjón af líffræðilegum þáttum og þeim tískustraumum sem eru ráðandi í samfélaginu hverju sinni. Nemandinn þjálfast í hraða og tækni við margbreytilegar klippingar og styrkist enn frekar í fagmannlegri framkomu, samskiptum, tjáningu, gerð verklýsinga.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi tískulínum sem eru ráðandi hverju sinni og útfærslum á þeim.
  • mismunandi samspili klippingar og hárlitar.
  • þeim líffræðilegu þáttum sem hafa áhrif á möguleika viðskiptavinar á vali á klippingu.
  • tjáningu og fagmannlegri framkomu.

Leikniviðmið

  • klippa dömuklippingu/tískulínur á módeli út frá eigin verklýsingu og hönnun.
  • klippa módel samkvæmt óskum þess og gera verklýsingu fyrir verkið.
  • gefa ráð um val og form á klippingu með hliðsjón af líffræðilegum þáttum og ráðandi tískustraumum.
  • lýsa verki sínu í máli og myndum.

Hæfnisviðmið

  • ráðleggja viðskiptavini um val á klippingum sem hæfa hverju sinni.
  • beita fjölbreyttum aðferðum, áhöldum og tækni við klippingu eftir því sem við á.
  • klippa innan ákveðinna tímamarka.
  • hanna tískulínur og útskýra það sem framkvæmt er fyrir viðskiptavini og öðrum í máli og myndum.
  • ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?