Fara í efni

BVPL2GV03 - Plast - greining og viðgerðir

Plast, greining og viðgerðir

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Farið er yfir efnauppbyggingu hitafastra og hitadeigra plastefna. Æfð greining plastefna. Æfðar suður og límingar jafnhliða greiningu bæði á nýju efni og ökutækjahlutum. Kynntir möguleikar við mótun plastefna við smíði hluta í yfirbyggingar ökutækja. Áhersla er lögð á hættur af reyk og uppgufun efna í plastviðgerðum.

Þekkingarviðmið

  • efnauppbyggingu hitafastra og hitadeigra plastefna
  • möguleikum við mótun plastefna við smíði hluta í yfirbyggingar ökutækja
  • hættum af reyk og uppgufun efna í plastviðgerðum

Leikniviðmið

  • bræða saman mismunandi gerðir plastefna með heitu lofti og með rafhitun

Hæfnisviðmið

  • lýsa efnauppbyggingu plastefna og greina þau í undir- og yfirflokka
  • greina plastefni samkvæmt leiðbeiningum framleiðenda
  • velja viðgerðaraðferð eftir eðli efnisins
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?