Fara í efni

BVÝB2BB03 - Ýmis búnaður

Búnaður bifreiða

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: BVVE2VS05
Farið yfir vinnu við að skipta um ýmsa hluti og einingar í ökutækjum sem ekki er fjallað um í öðrum áföngum. Skoðaðar vinnuaðferðir við að taka úr og setja í aftur hluta ökutækja svo sem hreyfla, kæla, mælaborð, miðstöðvar, sæti og innréttingar. Skipti á lausum yfirbyggingahlutum. Skoðað fyrirkomulag mælaborða, kveikilása og ræsihindrana. Æfingar í viðgerðum á stillanlegum baksýnisspeglum, þurrkubúnaði, hurðum og búnaði þeirra. Farið yfir ýmsar aðferðir til að mæla burðarvirki og undirvagn. Fjallað um notkun vökvatjakka við réttingu lausra hluta. Fjallað um tjónamatskerfið Cabas. Framkvæmd æfingaverkefni með lausum mælibúnaði og farið yfir mælikerfi og málblöð sem notuð eru við réttingu.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi byggingarlagi og gerð ökutækja
  • kröfum til ástands ökutækja í reglugerð um gerð og búnað ökutækja
  • aðferðum til að meta ástand burðarvirkis og yfirbyggingar
  • kröfum til burðarvirkis í reglugerð um gerð og búnað ökutækja

Leikniviðmið

  • taka úr og setja í aftur ýmsan vélbúnað, aukabúnað og innréttingar
  • skipta um og gera við þurrkubúnað, rúðuvindur, skrár og lamir hurða
  • skipta um hurðir og lok, svo sem vélarhlíf og lok á farangursgeymslu
  • gera einfalda burðarvirkismælingu

Hæfnisviðmið

  • finna viðgerðalýsingar í handbókum og rafrænum viðgerðagögnum
  • lýsa virkni eftirfarandi búnaðar: samlæsingum, rafknúnum rúðuvindum, þjófafælum, rafhituðum rúðum og útispeglum, rafstilltum útispeglum, mælum og gaumljósum, mælaborðslýsingu, innilýsingu, ræsihindrun í sjálfskiptingu og öðrum ræsihindrunum
  • lýsa mælitækni og mæliþörf á bifreiðatjónum
  • fylla út mæliskýrslu
  • framkvæma einstakar burðarvirkismælingar með lausum búnaði og gera samanburðarmælingar með málstöngum og handmælingu
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?