Fara í efni

SMÍÐ3PS05(AV) - Handavinna málmiðna 5

efnisflokkar smíðastáls, plötusmíði, skurðaðferðir

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: SMÍÐ3SS05
Í áfanganum læra nemendur að smíða eftir nákvæmum vinnuteikningum smíðagripi úr 5 -12 mm plötujárni og prófílum og nota til þess algengustu vélar til plötuvinnu s.s. vals, beyguvél, plötu- og prófílklippur. Nemendur læra að þekkja helstu efniseiginleika stáls og geta smíðað hluti úr því eftir nákvæmum teikningum. Ennfremur geta þeir skipulagt vinnu sína m.t.t. krafna um hagkvæmni, gæði, öryggi og umhverfi.

Þekkingarviðmið

  • helstu efnisflokkum smíðastáls
  • helstu vélum og verkfærum sem notuð eru við plötusmíði
  • algengustu skurðaraðferðum
  • hve rétt vinnuröð við gerð smíðahluta er mikilvæg
  • helstu aðferðum við réttingu á stáli
  • hlífðarbúnaði sem við á þegar unnið er með vélum og verkfærum sem notuð eru við plötusmíðar
  • vörnum gegn hávaða- og loftmengun

Leikniviðmið

  • beita algengum málmsmíðavélum, verkfærum og hjálparbúnaði sem þeim fylgja til nýsmíða úr plötum, prófílum og ryðfríu efni
  • framkvæma málmskurð með gas- og plasmaskurðartækjum
  • framkvæma skurð með málfrávikum ± 1 mm
  • smíða gripi úr plötum og prófílum eftir nákvæmum vinnuteikningum
  • vinna efnislista út frá teikningum og verklýsingum

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja vinnu sína m.t.t. krafna um hagkvæmni, gæði, öryggi og umhverfi
  • rétta plötu- og stangarefni með algengum kald- og hitaréttingaraðferðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?