Fara í efni

IÐNF2GB04(BH) - Iðnfræði háriðna 2

Grunnbraut

Einingafjöldi: 4
Þrep: 2
Forkröfur: IÐNF1GB04AH
Nemandinn lærir um hönnun og hlutföll við klippingar og greiðslur og um samskipti við viðskiptavininn. Farið er í litunarfræði, litastjörnuna, litanúmer og nöfn auk efnafræði hárlitunar- og permanentefna. Kynntar eru leiðir til sjálfbærni í hársnytiiðn og vistvænar vörur kynntar. Nemandinn lærir að greina mismunandi hárgerðir og hárskaða. Ýmis lykilorð við lestur leiðbeininga með hársnyrtiefnum á erlendum tungumálum eru skoðuð auk enskra fagorða. Unnið er með form, áferð, lögun og skoðaðar skilgreiningar hugtaka sem tengjast hárinu auk þess sem leitast er við að efla skilning nemenda á gerð og notkun verklýsinga. Lögð er áhersla á mikilvægi réttrar líkamsbeitingar. Nemendur gera ferilskrá og fræðast um atvinnuviðtöl.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi litategundum og styrkleikum þeirra.
  • litastjörnunni, heitum og köldum litum, hvað andstæðir litir gera.
  • efnafræði permanents og hárlitar og umgengni við hárefni.
  • uppbyggingu hárs og áhrif efna á það.
  • réttri líkamsbeitingu.
  • helstu fagorðum sem tengjast hárinu á íslensku og ensku.

Leikniviðmið

  • greina ástand hárs, líkamsform og andlitsfall og áhrif þess á möguleika á vali hársnyrtingar.
  • lesa leiðbeiningar og notkunarreglur efna á ensku.
  • nota litastjörnuna og lesa úr litaspjöldum.

Hæfnisviðmið

  • umgangast efni af virðingu og með varúð.
  • vinna með liti og permanentefni og nota þau hjálpargögn sem bjóðast.
  • beita líkamanum rétt við vinnu sína.
  • gera ferilskrá til atvinnuleitar.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?