Fara í efni

HKLI1GB03(AH) - Hársnyrting 1

Grunnbraut

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Nemandinn kynnist grunnatriðum kennslukerfis hársnyrtinámsins við klippingu á æfingahöfði og tileinkar sér helstu hugtök. Áhersla er lögð á að horfa og hugsa eins og hönnuður, að þekkja helstu hönnunarþættina og grunnformin fjögur sem notuð eru við klippingu: jafnsítt form, fláa, auknar og jafnar styttur. Nemandinn kynnist mikilvægi smitvarna og helstu öryggisþátta. Hann fær að auki grunnþjálfun í gerð og notkun verklýsinga og í meðferð og beitingu áhalda og tækni við klippingu.

Þekkingarviðmið

  • því kennslukerfi sem unnið er eftir og hvernig það er notað við hönnun og framkvæmd klippinga.
  • hugtökunum hverfipunktur, jafnsítt, flái, auknar og jafnar styttur og þeim hárformum sem hugtökin tákna.
  • helstu áhöldum sem notuð eru við klippingar.
  • helstu smitleiðum.

Leikniviðmið

  • klippa æfingahöfuð dömu og herra, einnig vanga og hnakkatopp í jafnsítt form, auknar og jafnar styttur auk fláa.
  • gera verklýsingu fyrir klippingu.

Hæfnisviðmið

  • hafa gott vald á greiðu, skærum og þynningarskærum og á samspili blásara, bursta og greiðu.
  • sjá samhengi í verklýsingu og því verki sem hún stendur fyrir.
  • þekkja ólík form í hársnyrtingu og hafa vald á aðferðum til að ná þeim fram.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?