Fara í efni

HÁRG1GB02(AH) - Hárgreiðsla og blástur 1

Grunnbraut

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Nemandinn kynnist hugmyndum, tækni og aðferðum á bak við mótun hárs með rúllum, klípum og hverskonar hitatækjum. Hann lærir og fær þjálfun í grunnatriðum við ísetningu á rúllum og klípum og mótun blautbylgja. Kennd er notkun á krullu-og hitajárnum auk beitingar rúllubursta við dömublástur og gerð einfaldra fléttna og snúninga. Farið er í undirstöðuatriði í form- og bylgjublæstri herra. Kennd er gerð og notkun verklýsinga. Notast er við æfingahöfuð við verklega þjálfun.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi formuppbyggingu í greiðslum og blæstri.
  • mismunandi gerðum rúlluísetninga og úrgreiðslna.
  • viðeigandi hármótunarefnum og áhöldum við ísetningu og greiðslu.
  • gerð og notkun verklýsinga fyrir hárgreiðslu.
  • mismunandi formum á bylgjugreiðslum.
  • notkun bylgjugreiðu og klípa.
  • notkun hárblásara og mismunandi tegunda af burstum.
  • einfaldri notkun hitajárna til hármótunar.
  • einföldum fléttum og snúningum í sítt hár.

Leikniviðmið

  • gera grunnskiptingar fyrir upprúll.
  • skipta hárinu upp í fyrirfram ákveðnar brautir.
  • setja ýmsar stærðir af rúllum í misjafna sídd af hári.
  • túbera og greiða úr mismunandi upprúllum á æfingahöfðum.
  • gera klípuupprúll á æfingahöfði auk úrgreiðslu.
  • blása dömuhár í mismunandi form.
  • nota viðeigandi bursta, greiður og mótunarefni.
  • gera einfaldar fléttur og snúninga.
  • handleika hitajárn.

Hæfnisviðmið

  • skipta, rúlla upp og forma hár með hliðsjón af útkomu, uppbyggingu og áferð greiðslu.
  • notast við verklýsingar við gerð greiðslna.
  • beita saman blásara, bursta og greiðu.
  • halda á greiðu á sama tíma og rúllað er upp.
  • taka skiptingar í samræmi við spólustærð og fyrirhugaða útkomu.
  • krulla og slétta hár.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?