Fara í efni

HDAM3FB03(BH) - Dömuklipping 2

Verkleg dömuklipping

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: HDAM2FB03AH
Nemandi geti samþætt kunnáttu og færni frá fyrri stigum náms til að efla fagmennsku og sjálfstæð vinnubrögð við klippingu auk faglegs frágangs verks. Hann þjálfast enn frekar í samspili þessara þátta þannig að heildarmynd hæfi við¬skiptavini hverju sinni. Verkin eru flest unnin á módelum og þjálfast neminn því í samskiptum við viðskiptavini og að ráðleggja þeim með tilliti til andlits og líkamsbyggingar.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi tískulínum og útfærslum þeirra.
  • ólíkum aðferðum til að ná fram formum og áferð.
  • samskiptum við viðskiptavini.

Leikniviðmið

  • klippa dömuklippingu/tískulínur í ólíkar hárlengdir á módeli út frá eigin hönnun.
  • klippa módel samkvæmt óskum þess og gera verklýsingu fyrir verkið.
  • gefa ráð um val á sídd, form og áferð klippingar með hliðsjón af líffræðilegum þáttum.

Hæfnisviðmið

  • beita öllum helstu áhöldum við framkvæmd klippinga.
  • ráðleggja um val á klippingu.
  • beita fjölbreyttum aðferðum og tækni við klippingu.
  • ganga vel um vinnusvæði, gæta öryggis og hreinlætis.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?