Fara í efni

RAVV2TL03(AV) - Viðgerðir á rafkerfum

bilanaleit, leiðarar, tengingar, viðgerðir

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: RAVV2RV03
Upprifjun á grunnatriðum rafmagnsfræðinnar, lögmál Ohms og aflútreikningur. Raflagnir, val á leiðurum, tengingar, bilanaleit og viðgerðir. Farið í þörf fyrir öryggi og tilgang þeirra. Viðgerðir á rafkerfum með lóðningum, krumptengjum og herpihólkum. Almennur rafbúnaður svo sem segulrofar (Relay) og aðrir rofar.

Þekkingarviðmið

  • helstu mæli- og prófunartækjum sem notast við rafkerfi vélhjóla
  • þörf og tilgangi varbúnaðar í rafkerfum
  • almennum rafbúnaði s.s. segulrofum og öðrum rofum

Leikniviðmið

  • reikna viðnám og straum í mótstöðum sem tengdar eru á mismunandi hátt
  • mæla og prófa segulliða og aðra rofa
  • framkvæma skipulega bilanaleit

Hæfnisviðmið

  • gera við bilanir í raflögnum með viðurkenndum tengibúnaði
  • gera við rafkerfi með lóðningum, krumptengjum og herpihólkum
  • nýta íhluti til viðgerða á rafkerfum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?