Fara í efni

HJÚK3FG05 - Samfélagshjúkrun

fjölskylduhjúkrun, geðhjúkrun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: HJÚK3ÖH05
Í áfanganum er fjallað um hugtök og kenningar í fjölskyldu- og geðhjúkrun ásamt heimahjúkrun og heilsugæslu. Farið er í kenningar um þroskaferil fjölskyldunnar, þarfir og verkefni fjölskyldumeðlima á ýmsum þroskastigum. Farið er í hugmyndafræði heilsueflingar og hjúkrunarviðfangsefni í tengslum við fjölskyldu- og heimahjúkrun. Fjallað er um algengar geðraskanir, hjúkrun, forvarnir og endurhæfingu geðsjúkra með áherslu á fjölskyldumiðaða nálgun. Áhersla er lögð á að nemandinn kynnist mikilvægi geðhjúkrunar á hinum ýmsu sviðum heilbrigðisþjónustunnar. Í áfanganum er lögð áhersla á tengingu fræðilegrar þekkingar við skipulagningu og framkvæmd hjúkrunar.

Þekkingarviðmið

  • hugtökum og kenningum í fjölskyldu- og geðhjúkrun
  • hlutverki heilsugæslu og heimahjúkrunar í samfélaginu
  • hugmyndafræði þroska- og fjölskyldukenninga
  • heilsueflingu og forvörnum
  • einkennum og hjúkrunarmeðferðum algengra geðraskanna og fíknisjúkdóma

Leikniviðmið

  • lýsa áhrifum veikinda einstaklings á fjölskylduna
  • hjúkra einstaklingum með geðraskanir og fíknisjúkdóma
  • beita þekkingu sinni í samvinnu við aðrar fagstéttir
  • leiðbeina og fræða aðra um heilsueflingu og forvarnir
  • nota kenningar og hugtök innan fjölskylduhjúkrunar í raunverulegum verkefnum
  • lýsa einkennum algengra geðraskanna og fíknisjúkdóma
  • nota viðurkenndar hjúkrunarmeðferðir í fjölskyldu- og geðhjúkrun

Hæfnisviðmið

  • túlka helstu kenningar og hugtök innan fjölskyldu- og geðhjúkrunar
  • útskýra hlutverk heima- og heilsugæsluhjúkrunar
  • bera saman hugmyndafræði mismunandi þroska- og fjölskyldukenninga
  • vera þátttakandi í heilsueflingu og forvörnum í samfélaginu
  • rökstyðja hjúkrunarmeðferðir í heima- og heilsugæsluhjúkrun
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?