Fara í efni

SÝKL2SS05(AV) - Sýklar, tegundir og sérkenni

smitgát, smitsjúkdómar, sýklar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: SJÚK2MS05, HBFR1HH05
Í áfanganum er fjallað um mismunandi tegundir og sérkenni sýkla. Fjallað er um byggingu sýkla, umhverfisþætti sem móta útbreiðslu sýkla, smitleiðir, helstu flokka smitsjúkdóma ásamt sýklalyfjum. Farið er í grundvallaratriði í sértækum og almennum vörnum líkamans gegn sýklum og fjallað um hlutverk ónæmiskerfisins. Fjallað er um smitgát og reglugerðir um smitvarnir. Farið er í grunnþjálfun við meðferð og ræktun sýkla í tilraunastofu og skýrslugerð.

Þekkingarviðmið

  • sögu og þróun sýklafræðinnar
  • mismunandi tegundum sýkla og sérkennum þeirra
  • helstu flokkum smitsjúkdóma
  • mismunandi aðferðum við ræktun og greiningu sýkla
  • helstu flokkum sýklalyfja, sérhæfðra og ósérhæfðra og verkun þeirra
  • aðferðum við dauð- og sótthreinsun og takmörkunum þeirra
  • helstu flokkum sýklalyfja, sérhæfðra og ósérhæfðra og verkun þeirra
  • grundvallaratriðum í hlutverki ónæmiskerfisins og helstu afleiðingum ónæmisröskunar
  • mismunandi tegundum bóluefna og verkun þeirra
  • almennum reglum og vinnubrögðum um smitgát, smitvarnir og mikilvægi handþvottar.

Leikniviðmið

  • nota algeng fræðileg hugtök sem tengjast efni áfangans
  • tengja mismunandi umhverfisaðstæður við útbreiðslu smitsjúkdóma
  • þvo sér um hendur á réttan hátt
  • skrifa skýrslur

Hæfnisviðmið

  • útskýra löskunaráhrif sýkla á mannslíkama
  • útskýra mismunandi smithæfni sýkla
  • útskýra smitgát og varnir í tengslum við smitsjúkdóma
  • forgangsraða og nýta þekkingu sína í sýklafræði í sérhæfðu starfi
  • miðla þekkingu um sýkla í leik og starfi á fjölbreyttan og jákvæðan hátt
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?