Fara í efni

SJÚK2GH05 - Sjúkdómafræði 2

geðraskanir, hjartasjúkdómar

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: SJÚK2MS05
Í áfanganum er fjallað um líkamlega og geðræna sjúkdóma og latneskt nafngiftakerfi sjúkdóma. Fjallað er um hugtök og sjúkdóma sem tengjast innkirtlakerfi, hjarta-og æðakerfi, öndunarfærum, meltingarfærum, þvag- og æxlunarkerfi. Áhættuþættir, einkenni, orsakir, afleiðingar og meðferðamöguleikar algengra sjúkdóma í fyrrnefndum líkamskerfum eru teknir til umfjöllunar. Algengum geðröskunum eru gerð skil og fjallað um forvarnir, einkenni og meðferð geðraskana. Skoðuð eru tengsl umhverfis, erfða og áhættuþátta við sjúkdómsþróun þar sem við á.

Þekkingarviðmið

  • algengum fræðilegum hugtökum sem tengjast efni áfangans
  • meingerðum, einkennum, orsökum, afleiðingum, forvörnum og meðferðarmöguleikum algengra sjúkdóma í innkirtlum, hjarta og æðakerfi, öndunarfærum, meltingarfærum, þvag- og æxlunarkerfi
  • einkennum, orsökum, forvörnum og meðferðarmöguleikum algengra geðraskana
  • tengslum sjúkdómsþróunar og truflana á samvægisferlum í líkama
  • tengslum sjúkdómsþróunar við umhverfis og áhættuþætti
  • fjölbreyttum miðlum til þess að viðhalda og þróa þekkingu sína í sjúkdómafræði

Leikniviðmið

  • nota algeng fræðileg hugtök sem tengjast efni áfangans
  • bera saman einkenni, orsakir, forvarnir og meðferðarmöguleika algengra geðraskana
  • benda á tengsl sjúkdómsþróunar og truflana á samvægisferlum í líkama
  • benda á tengsl sjúkdóma við umhverfis og erfðaþætti
  • nota fjölbreytta miðla til þess að viðhalda og þróa þekkingu sína í sjúkdómafræði

Hæfnisviðmið

  • útskýra meingerð, einkenni, orsakir, afleiðingar, forvarnir og meðferðarmöguleika algengra sjúkdóma í innkirtlum, hjarta og æðakerfi, öndunarfærum, meltingarfærum, þvag- og æxlunarkerfi
  • rekja tengsl sjúkdóma og umhverfis og erfðaþátta, þar sem við á
  • miðla þekkingu um sjúkdóma í innkirtlakerfi, hjarta og æðakerfi, öndunarfærum, meltingarfærum, þvag- og æxlunarkerfi auk geðraskana á fjölbreyttan og skapandi hátt
  • bera kennsl á algeng einkenni sjúkdóma og/eða frávik frá eðlilegu ástandi
  • tengja sjúkdómseinkenni og sjúkdómsástand
  • yfirfæra og nýta þekkingu í sjúkdómafræði í starfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?