Fara í efni

TNTV2NC05 - Tölvur og net 3

Cisco stýrikerfi, netkerfisstaðlar, uppbygging netkerfa

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: TNTV2ST03
Í áfanganum kynnist nemandinn tölvunetkerfum, mismunandi gerð þeirra, margvíslegri uppbyggingu og þeim búnaði sem þau samanstanda af. Nemandinn kynnist virkni tölvuneta með því að tileinka sér netkerfistaðlana OSI og TCP/IP. Höfuðáhersla áfangans er að kenna nemandanum grunninn í vélbúnaði tölvunetkerfa, stillingar á búnaði og tengingu milli íhluta þeirra. Nemandinn lærir einnig að hanna meðalstór netkerfi og skipta stórum kerfum upp í minni.

Þekkingarviðmið

  • íhlutum tölvunetkerfa, tilgangi þeirra og virkni
  • OSI og TCP/IP líkönunum
  • IP vistföngum
  • hugtökum og skammstöfunum sem notaðar eru í tölvunetkerfum
  • nethögun (topology) tölvulagna

Leikniviðmið

  • nota mismunandi tölvustrengja
  • meta hvaða nethögun hentar best við hvert tilfelli
  • útbúa tölvustrengi og gæðamæla þá
  • rekja bilanir í netsamböndum
  • beita fagorðaforða til að ræða um tölvunetkerfi við aðra tæknimenn

Hæfnisviðmið

  • hanna meðalstór tölvunetkerfi með vistföngum
  • velja réttan búnað við uppsetningu á tölvunetkerfi
  • setja upp og stilla meðalstórt tölvunetkerfi
  • stilla beina (routers) með grunnstillingum
  • finna bilanir í tölvunetkerfi
  • nýta áunna tækniensku sér til framdráttar og frekara náms í nýjustu tækni á þessum sviðum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?