Fara í efni

VSME2LÖ05 - Smáspennuvirki

loftnetskerfi, tölvu og símakerfi, öryggiskerfi

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: RAMV2ÞS05 og RALA1RT03
Í þessum áfanga er lögð áhersla á meðalstór boðskiptakerfi (loftnets-, síma- og tölvulagnakerfi). Einnig er fjallað um uppbyggingu, uppsetningu og viðhald einfaldra viðvörunarkerfa, s.s. brunaviðvörunarkerfa og þjófavarnarkerfa fyrir heimili og smærri fyrirtæki. Þá er farið yfir reglur og reglugerðir sem um þessa hluti gilda. Farið er í uppbyggingu og eiginleika helstu dreifikerfa, s.s. dreifingu sjónvarps á VHF- og UHF-rásum, örbylgju, ljósleiðara og gervihnetti. Farið verður í tæknikröfur sem gerðar eru til viðtöku og uppsetningar á framgreindum kerfum. Nýjungar í dreifingu í gegnum þá miðla sem eru í boði og farið yfir tækni við dreifingu og miðlun efnis til heimila og stofnana. Eiginleikar ljósleiðarans eru kynntir fyrir nemandanum og farið í þær kröfur sem gerðar eru til ljósleiðaralagna. Í áfanganum er einnig fjallað um reglur sem gilda um neyðarlýsingar, uppsetningar og gerðir þeirra, ásamt íhlutum, eiginleikum, hlutverki og notkunarsviði þeirra.

Þekkingarviðmið

  • helstu íhlutum loftnetskerfa og eiginleikum þeirra
  • mismunandi aðferðum við teikningu minni loftnetskerfa og útfærslur á þeim
  • uppsetningu boðskiptalagna og ljósleiðaralagna
  • reglum sem gilda um sjálvirk brunaviðvörunarkerfi
  • reglum og aðferðum sem gilda um uppsetningu eftirlits og viðvörunarkerfa
  • helstu reglum og stöðlum um neyðarlýsingar

Leikniviðmið

  • teikna og hanna loftnetskerfi
  • mæla minni fjarskiptakerfi
  • teikna brunaviðvörunarkerfi
  • lesa úr uppdráttum af brunaviðvörunarkerfum
  • lesa úr mælingum, bæði gæði og bilanir
  • velja búnað og strengi í eftilits og viðvörunarkerfi
  • velja neyðarlýsingarbúnað eftir reglum sem um hann gilda

Hæfnisviðmið

  • hanna og velja búnað í minni loftnetskerfi
  • nýta teikningar og verklýsingar fyrir loftnetskerfi
  • velja efni og strengi í boðskiptalagnir (ljósleiðara og cat5)
  • velja búnað í brunaviðvörunarkerfi
  • hanna minni brunaviðvörunarkerfi og gera úttektarskýrslur
  • nýta reglur um sjálfvirk brunakerfi
  • nýta reglur og staðla um neyðarlýsingar
  • færa inn breytingar á uppdrætti,sem gerðar eru á kerfunum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?