Fara í efni

RALA2TM03 - Raflagnir 3

mælingar, töflusmíði, varbúnaður, öryggismál

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: RALA1RT03
Í áfanganum er aðaláhersla á varbúnað, vírsverleika og rafdreifiskápa. Einning er farið í raflagnir í minni húsveitum. Farið er yfir staðsetningu á búnaði og innfeldar og áfelldar lagnir, lagnaleiðir og brunaþéttingar kynntar. Farið er í reglugerðarákvæði varnarráðstafana sem varða snerti- og brunahættu. Lögð er áhersla á skilning nemanda á varbúnaði, bruna- og snertihættu. Nemandinn fær þjálfun í notkun mælitækja og lögð er áhersla á fagmannleg vinnubrögð.

Þekkingarviðmið

  • mögulegum skemmdum á búnaði þegar mælitækjum er beitt
  • reglum um gildleika leiðara miðað við áraun og staðla sem um það gilda
  • varúðarráðstöfunum er varða snerti og brunahættu
  • mælitækjum sem notuð eru við bilanaleit
  • uppbyggingu minni veitna og mikilvægi efnisvals í þær
  • því öryggi sem felst í að hafa skipulag og þrifalegt á vinnustaðnum

Leikniviðmið

  • mæla einangrunarbilun og spennur í veitum
  • leggja rör og strengi og ganga frá dreifiskáp
  • lesa úr uppdráttum og fyrirmælum
  • tengja ýmsar gerðir fjarrofa

Hæfnisviðmið

  • leggja raflagnir í minni veitur
  • vinna eftir fyrirmælum
  • þekkja röð varnarráðstafana í húsveitum
  • ákveða vírsverleika lagna
  • einungramæla og finna bilun í húskerfi
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?