Fara í efni

ÍÞRG3LK03 - Knattspyrna

knattspyrna, leikfræði, reglur, tækni

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRG2ÞS03 eða sambærilegur áfangi
Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í knattspyrnu. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt. Áfanginn samsvarar sérgreinahluta Þjálfara 1 í fræðslukerfi KSÍ og nemendur taka einnig dómarapróf frá KSÍ.

Þekkingarviðmið

  • leikreglum í knattspyrnu
  • hvernig á að leiðbeina börnum í knattspyrnu
  • kennslu tækniæfinga í knattspyrnu
  • skipulagningu knattspyrnuþjálfunar
  • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í knattspyrnu

Leikniviðmið

  • leiðbeina byrjendum í knattspyrnu
  • greina getu ólíkra einstaklinga í hóp
  • nota knattspyrnu sem skólaíþrótt
  • spila knattspyrnu

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja íþróttatíma í knattspyrnu
  • stjórna hópi af börnum í knattspyrnuþjálfun
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?