Fara í efni

ÍÞRG3LB03 - Blak

blak, leikfræði, reglur, tækni

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRG2ÞS03 eða sambærilegur áfangi
Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í blaki. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemandinn öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.

Þekkingarviðmið

  • leikreglum í blaki
  • hvernig á að leiðbeina börnum í blaki
  • kennslu tækniæfinga í blaki
  • skipulagningu blakþjálfunar
  • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í blaki

Leikniviðmið

  • leiðbeina byrjendum í blaki
  • greina getu ólíkra einstaklinga í hóp
  • nota blak sem skólaíþrótt
  • spila blak

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja íþróttatíma í blaki
  • stjórna hópi af börnum í blakþjálfun
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?