Fara í efni

ÍÞRG3KL03 - Körfuknattleikur

körfuknattleikur, leikfræði, reglur, tækni

Einingafjöldi: 3
Þrep: 3
Forkröfur: ÍÞRG2ÞS03 eða sambærilegur áfangi
Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur með það að markmiði að nemandinn læri að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði í körfuknattleik. Áhersla er á tæknikennslu og kennslu í leikfræði og reglum. Stefnt er að því að nemandinn öðlist ákveðna grunnfærni í greininni og lögð er áhersla á mikilvægi þess að leikurinn sé kenndur á leikrænan og skemmtilegan hátt.

Þekkingarviðmið

  • leikreglum í körfuknattleik
  • skipulagningu körfuknattleiksþjálfunar
  • kennslu tækniæfinga í körfuknattleik
  • hvernig á að leiðbeina börnum í körfuknattleik
  • fjölbreyttum leik- og tækniæfingum í körfuknattleik

Leikniviðmið

  • leiðbeina byrjendum í körfuknattleik
  • greina getu ólíkra einstaklinga í hóp
  • nota körfuknattleik sem skólaíþrótt
  • spila körfuknattleik

Hæfnisviðmið

  • skipuleggja íþróttatíma í körfuknattleik
  • stjórna hópi af börnum í körfuknattleiksþjálfun
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?