Fara í efni

ÍÞRF2ÞB03 - Þjálffræði

skipulag þjálfunar, stefnumótun, þjálfun barna

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Forkröfur: engar
Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn læri um hlutverk þjálfara í íþróttastarfi, sérstaklega við þjálfun barna á aldrinum þriggja til tólf ára. Lögð er áhersla á skipulag þjálfunar, áætlanagerð og markmiðssetningu. Nemandinn fær undirstöðuþekkingu í kennslu- og aðferðafræði íþrótta og þjálfun í að bregðast við íþróttameiðslum. Farið verður yfir upphitun, bæði almenna og sérhæfða. Fjallað er um mataræði íþróttamanna og áhrif fíkniefna á afkastagetu og árangur. Einnig er lögð áhersla á að nemandinn læri um uppbyggingu frjálsra félagasamtaka, sérstaklega íþróttafélaga. Nemandinn fær innsýn í stjórnunarstörf sem tengjast íþróttaviðburðum og félagasamtökum, kynnist stefnumótun í félagsstarfi, uppbyggingu félaga og skipulagi og helstu skipuritum sem starfað er eftir. Í áfanganum er einnig komið inn á samskipti heimila og frjálsra félaga, jafnrétti og vímuvarnarstefnu íþróttafélaga.

Þekkingarviðmið

  • hlutverki þjálfara í íþróttum
  • helstu þroskaþáttum barna
  • helstu þjálfunaraðferðum
  • tilgangi upphitunar
  • áhrifum mataræðis á afkastagetu íþróttamanna
  • áhrifum ólöglegra lyfja á afkastagetu íþróttamanna
  • uppbyggingu og starfsemi frjálsra félagasamtaka og íþróttafélaga, sér- og fjölgreinafélaga, og hlutverki stjórnenda
  • hlutverki sínu sem fyrirmynd

Leikniviðmið

  • greina á milli þjálfunar barna og fullorðinna
  • nota upplýsingatækni við skipulag þjálfunar
  • stjórna fundum og skrifa fundargerðir
  • skipuleggja þjálfun og markmið hennar

Hæfnisviðmið

  • stjórna æfingatíma barna með þroska þeirra í huga
  • stjórna upphitun fyrir alla aldurshópa
  • útbúa tímaseðla
  • skipuleggja keppnisferðalag með börnum
  • skipulegggja þjálfun til skemmri og lengri tíma
  • skipuleggja mataræði með það að markmiði að ná árangri í íþróttum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?