Fara í efni

VÞVS1AV04 - Þjálfun til starfa í matvæla- og ferðagreinum

atvinnulíf, matvæla- og ferðagreinar, vinnustaðanám

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Nemandinn kynnist störfum í matvæla- og ferðagreinum á vinnustöðum og í atvinnulífi, í hverju störfin eru fólgin og við hvaða aðstæður þau fara fram. Farið er yfir mikilvægi samskipta við samstarfsfólk og viðskiptavini. Nemandinn fær verklega þjálfun í helstu grunnþáttum starfa í ferða- og matvælagreinum s.s. framreiðslu. Lögð er áhersla á að nemandinn öðlist sjálfstraust til að gegna fjölbreyttum störfum í matvæla- og ferðagreinum.

Þekkingarviðmið

  • mismunandi störfum í ferða- og matvælagreinum, í hverju þau eru fólgin og hvar þau fara fram
  • fjölbreytni starfa í ferða- og matvælagreinum
  • hvernig návígi við viðskiptavini er háttað í störfum í ferða- og matvælagreinum

Leikniviðmið

  • vinna við mismunandi störf í ferða- og matvælagreinum
  • bregðast við þeim kröfum sem gerðar eru til starfa í ferða- og matvælagreinum
  • umgangast viðskiptavini á faglegan og viðurkenndan hátt
  • annast helstu grunnstörf í ferða- og matvælagreinum

Hæfnisviðmið

  • takast á við margbreytileg störf í ferða- og matvælagreinum
  • umgangast viðskiptavini á faglegan hátt
  • vinna við öll grunnstörf er tengjast ferða- og matvælagreinum og gera sér grein fyrir þeim kröfum sem gerðar eru til starfsmanna
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?