Fara í efni

ÍSLE1TM04 - Íslenska með áherslu á tjáningu

málskilningur, tjáning

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Unnið verður með alla þætti íslenskunnar þar sem tjáning verður höfð að leiðarljósi. Áhersla er á að efla þekkingu, leikni og hæfni nemenda í notkun tjáskiptaleiða sem henta hverjum og einum. Farið verður í fjölbreytt viðfangsefni, s.s. umræður í litlum og/eða stórum hópum, framsagnarverkefni, hugtakaverkefni og fjölbreytt verkefni sem stuðla að því að styrkja sjálfstraust nemenda. Megin áhersla verður á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr nú þegar að.

Þekkingarviðmið

  • samskiptaleið sem hentar honum
  • skoðunar- og/eða tjáningarfrelsi
  • mikilvægi þess að láta skoðanir sínar í ljós og hlusta á sjónarmið annarra

Leikniviðmið

  • tjá sig fyrir framan nemendahópinn
  • taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
  • leggja mat á eigin verkefni og/eða frammistöðu

Hæfnisviðmið

  • vera meðvitaður um styrkleika sína
  • spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • virða skoðanir annarra
  • virða almennar samskiptareglur
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?