Fara í efni

LÍFS1HN05(AV) - Lífsleikni með áherslu á heilbrigði og velferð

Heilbrigði, forvarnir, nám, skóli

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Áhersla verður á andlegt, líkamlegt og félagslegt heilbrigði. Einnig samspil einstaklings, aðstæðna og umhverfis. Notast verður við atburði líðandi stundar sem umræðuefni og sögulegar staðreyndir. Megin áhersla verður á að nemandinn viðhaldi og byggi ofan á þann grunn sem hann býr nú þegar að.

Þekkingarviðmið

  • hugtökunum heilbrigði og velferð
  • mikilvægi þess að nýta hæfileika sína
  • mikilvægi þess að borða hollt og gott
  • mikilvægi hreyfingar og hvíldar
  • hugtökunum hollusta, hvíld, hreyfing, hreinlæti, hamingja, hugrekki og kynheilbrigði

Leikniviðmið

  • skoða og meta eigið heilbrigði og eigin velferð
  • vinna með öðrum
  • taka tillit til annarra
  • sýna samkennd
  • taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir

Hæfnisviðmið

  • vera meðvitaður um styrkleika sína
  • spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • tileinka sér jákvætt hugarfar
  • auka eigið heilbrigði og velferð
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?