Fara í efni

LÍFS1SU04 - Lífsleikni með áherslu á skólabrag og samfélag

samfélag, samskipti, skólabragur, umgengni

Einingafjöldi: 4
Þrep: 1
Forkröfur: engar
Í áfanganum er leitast við að styrkja nemandann sem einstakling, námsmann og efla virkni hans í hópnum. Lögð er áhersla á að styrkja samkennd nemanda, efla tjáningarhæfni, sjálfstraust og öryggiskennd hans í og utan skóla. Unnið er með skólareglur, umgengni, námsvenjur og annað sem snýr að veru nemandans í VMA. Fjallað um mikilvægi þess að taka ábyrgð á náminu, hegðun, mætingum, neyslumynstri, fjármálum og almennri samfélagsþátttöku. Nemandinn heldur dagbók þar sem hann skrásetur og leggur mat á það sem gert er í lífsleikni. Einnig á nemandinn að vera með námsmöppur þar sem öllum verkefnum er safnað saman.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi þess að nýta hæfileika sína
  • mikilvægi sjálfstæðis og sjálfsábyrgðar í lýðræðissamfélagi
  • að allir hafa hæfileika og þroskamöguleika
  • eigin tilfinningum og skoðunum
  • hugtakinu læsi í víðu samhengi
  • mikilvægi tjáningar og hlustunar
  • ýmsum aldurs- og áhugamiðuðum hugtökum
  • mismunandi tjáskiptaleiðum
  • tilfinningum sínum og styrkleikum
  • athöfnum daglegs lífs

Leikniviðmið

  • vinna með öðrum
  • taka tillit til annarra
  • sýna samkennd
  • taka þátt í umræðum og tjá eigin skoðanir
  • nýta sér upplýsingar úr umhverfinu
  • tjá sig fyrir framan aðra
  • virða skoðanir annarra

Hæfnisviðmið

  • vera meðvitaður um styrkleika sína
  • spyrja spurninga og hlusta á sjónarmið annarra af víðsýni
  • tileinka sér jákvætt hugarfar
  • nýta styrkleika sína á jákvæðan og uppbyggilegan hátt
  • nýta sér læsi í víðu samhengi
  • tjá eigin skoðanir
  • lesa í umhverfi, samskipti, tilfinningar og reglur í þeim tilgangi að átta sig á hvað er viðeigandi hverju sinni
  • skilja orð og hugtök sem tengjast tilfinningum sínum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?