Fara í efni

FORR2VV10 - Vefforritun

vefforritun, vefsíðugerð

Einingafjöldi: 10
Þrep: 2
Forkröfur: Að hafa lokið a.m.k. 5 einingum í ensku og 5 einingum í stærðfræði á 2. þrepi.
Í áfanganum er fjallað um vefsíðugerð og helstu undirstöðuatriði vefforritunar. Áherslusvið áfangans eru meðal annars HTML ritun, CSS stílsíður, Javascript, SQL og PHP. Hver þessara þátta er tekinn sérstaklega fyrir og sýnt er hvernig samspil þeirra stuðlar að vandaðri framsetningu vefsíðna sem á að tryggja nemendum góða undirstöðu í algengum verkefnum vefforritunar. Í þessum áfanga eru einnig grunnatriði vefforritunar kynnt með notkun þekktra forritunarmála og notkun gagnagrunna. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð nemanda.

Þekkingarviðmið

  • helstu hugtökum í HTML, CSS, JavaScript, PHP og gagnagrunnum
  • forritun
  • muninum á server vs client side programming

Leikniviðmið

  • nota JavaScript til að búa til einfalda viðmótsvirkni
  • nota PHP til að gera einfaldar dýnamískar síður
  • nota helstu skipanir í SQL
  • nota helstu hjálpartól
  • nota HTML og CSS til að búa til vefsíðu
  • lesa HTML kóða í vefsíðu

Hæfnisviðmið

  • búa til HTML síðu á réttan hátt
  • forrita viðmót
  • stíla vefsíður á einfaldan hátt með CSS
  • keyra JavaScript á vefsíðu
  • nýta lágmarksfjölda skipana til að leysa verkefni
  • búa til einfaldar fyrirspurnir í gagnagrunn
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?