Fara í efni

MYNL3MS05(AV) - Módelteikning og líkamsbygging, framhald

fagurfræði, módelteikning, sjónskynjun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: MYNL2MA05
Nemandinn byggir á fyrri módeláfanga og dýpkar skilning sinn og eykur þekkingu á stærðfræði og fagurfræði mannslíkamans. Hann heldur áfram að þjálfa sig í að umbreyta þrívíðu formi mannslíkamans í tvívíða teikningu með samvinnu sjónskynjunar og hreyfingar handar. Hann rannsakar byggingu og mótun forma mannslíkamans þar sem áhersla er á jafnvægi, hlutföll, hreyfingu milli módelteikningar og beina og vöðvabyggingar. Hann beitir einnig frjálsri teikningu þar sem skynjun, túlkun og tjáning er í forgrunni. Unnið er eftir lifandi fyrirmynd, beinagrind og tvívíðum myndum með ýmiss konar efnum og aðferðum. Nemandinn vinnur sjálfstætt að nánari skoðun á módeli og teiknistíl milli kennslustunda og ígrundar stöðugt verk sín í samvinnu við kennara og aðra nemendur.

Þekkingarviðmið

  • samvinnu sjónskynjunar og hreyfingar handar í teikningu
  • margbreytileika þeirra forma, hlutfalla og spennu sem mannslíkaminn býr yfir
  • samhljómi milli módelteikningar og beina- og vöðvabyggingar mannslíkamans
  • burðargetu og styrk beina- og vöðvabyggingar og tengingu við hönnun
  • hvað er ólíkt með rannsóknarvinnu og frjálsri teikningu
  • hvernig nokkrir ólíkir listamenn í sögunni og samtímanum hafa unnið út frá mannslíkamanum

Leikniviðmið

  • hreyfa teikniáhald í samræmi og samfellu við skynjun sína og ætlan
  • teikna og móta hreyfingu í mismunandi líkamsstöðu í jafnvægi og réttum hlutföllum
  • móta flókin form líkamans og túlka spennu og átök
  • byggja teikningu sína á rannsóknarvinnu á mannslíkamanum og verkum annarra
  • skynja og túlka það sem hann sér og upplifir á persónulegan og skapandi hátt

Hæfnisviðmið

  • nýta þekkingu sína og leikni í módelteikningu til að vinna að ýmsum ólíkum verkefnum
  • koma auga á hluti/þætti í umhverfi sínu sem tengjast módelteikningu og vinna með þá á eigin forsendum
  • skilja stærðir og hlutföll og nýta í hvers konar myndsköpun
  • nýta verk annarra listamanna sem innblástur fyrir eigin verk
  • ígrunda verk sín og vinnuferli og ræða við aðra
  • taka virkan þátt í umræðu um verk sín og annarra
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?