Fara í efni

HEIM3HR05 - Rit heimspekinga

klassísk heimspekirit, samræða og rökræða um frumspeki, siðfræði, þekkingarfræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: HEIM2HK05 eða sambærilegur áfangi
Í áfanganum eru tekin fyrir klassísk heimspekirit og æfð rökgreining og rökræða. Lögð er áhersla á samræðu þar sem æfð er rökgreining, rökræða, virðing fyrir skoðunum annarra og skapandi hugsun. Leitast er við að fara nákvæmar í eina af undirgreinum heimspekinnar s.s. siðfræði eða þekkingarfræði. Áhersla á að auka víðsýni nemanda, rökhugsun, sjálfstæð og öguð vinnubrögð.

Þekkingarviðmið

  • sérstöðu heimspeki meðal fræðigreina
  • grundvallaratriðum tiltekinna undirgreina innan heimspekinnar
  • helstu heimspekingum sögunnar og kenningum þeirra

Leikniviðmið

  • beita heimspeki á ýmisleg vandamál, t.d. siðferðileg eða þekkingarfræðileg
  • greina heimspekileg vandamál frá öðrum vandamálum
  • beita heimspekilegri nálgun á sígilda texta

Hæfnisviðmið

  • taka þátt í heimspekilegri rökræðu
  • beita gagnrýninni hugsun, virða skoðanir annarra og taka uppbyggilegri gagnrýni
  • taka afstöðu til mála út frá þeim grunni sem áfanginn byggir á
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?