Fara í efni

FÉLA2SE05 - Stjórnmálafræði

Evrópusamstarf, stjórnmálastefnur, vald og lýðræði, íslensk stjórnmál

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: FÉLA2FA05 og SAGA2SÍ05 eða sambærilegir áfangar
Helstu hugtök stjórnmálafræðinnar kynnt. Nemandinn lærir um grundvallarstjórnmálastefnur 19. aldar sem áttu eftir að móta flokkakerfi stjórnmála vestrænna ríkja, þ.m.t. Ísland. Kynntar verða kenningar um lýðræði, stjórnkerfi, kosningahegðun, mismunandi kjördæmaskipan, flokkaskipulag og samspil þar á milli. Saga og þróun íslenskra stéttastjórnmálaflokka er rakin frá upphafi til nútímans. Nemandinn metur þróun íslenskra stjórnmála út frá þeim hugtökum sem hann lærir og tengir sögu íslenskra stjórnmálaflokka við helstu hugmyndakerfin. Einnig verður gerð grein fyrir alþjóðlegri samvinnu ríkja eftir síðari heimsstyrjöld, m.a. verður aðdraganda og þróun Evrópusambandsins lýst, uppbyggingu og stjórnkerfi þess og jafnframt verður leitast við að varpa ljósi á umræðu dagsins í dag um kosti og galla aðildar að ESB. Áhersla á að tengja námsefnið reynsluheimi nemanda, auka víðsýni hans, rökhugsun og sjálfstæð og öguð vinnubrögð.

Þekkingarviðmið

  • helstu hugtökum stjórnmálafræðinnar
  • grundvallarstjórnmálastefnum sem mótað hafa flokkakerfi vestrænna ríkja og víðar, þ.m.t. það íslenska
  • mismunandi kenningum um lýðræði, vald, kosningakerfi og fleiri viðfangsefnum stjórnmálafræðinnar
  • sögu og þróun íslenskra stéttastjórnmála frá upphafi þeirra til nútímans
  • alþjóðlegri samvinnu eftir síðari heimsstyrjöld, einkum það sem snýr að Íslandi
  • samvinnu Evrópuríkja eftir síðari heimsstyrjöld, aðdraganda Evrópusambandsins og stofnanauppbyggingu þess

Leikniviðmið

  • beita helstu hugtökum stjórnmálafræðinnar í námi og daglegri umræðu
  • ræða og rita um viðfangsefni stjórnmálafræðinnar af þekkingu og víðsýni
  • nota þekkingu sína til áframhaldandi náms sem og í almennri umræðu um samfélagsleg málefni

Hæfnisviðmið

  • tengja stefnu og sögu íslenskra stjórnmálaflokka við helstu hugmyndakerfi alþjóðlegra stjórnmála
  • rökræða og útskýra fyrir öðrum ýmis hugtök og viðfangsefni stjórnmálafræðinnar
  • láta sig varða ýmis samfélagsleg álitaefni í lýðræðislegu þjóðfélagi
  • skilja mikilvægi stjórnmála og stjórnmálaþátttöku í lýðræðislegu þjóðfélagi
  • beita gagnrýninni hugsun á viðfangsefni stjórnmálafræðinnar
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?