Fara í efni

LÍFF2NÆ05 - Næringarfræði

aukefni, næringarþarfir, orku- og næringarefni

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: engar
Í áfanganum er fjallað um ráðleggingar landlæknis um orku- og næringarefni, hlutverk þeirra, ráðlagða dagskammta og skortseinkenni. Farið er í gildandi lög og reglugerðir um aukefni í matvælum og merkingar umbúða. Farið er í næringarefnatöflur/-forrit til að reikna út næringargildi máltíða. Lögð er áhersla á að nemendur geti með gagnrýnum hætti metið hollustu og gildi fullyrðinga um næringu í fjölmiðlum og á netinu. Fjallað er um næringarþarfir mismunandi hópa, sérfæði á sjúkrastofnunum og helstu gerðir sérfæðis sjúklinga og forsendur fyrir því. Áhersla á að nemandi verði meðvitaður um eigin ábyrgð á góðri næringu og heilsu og sé ljóst hvers virði góðar neysluvenjur eru heilbrigði þjóðar.

Þekkingarviðmið

  • orku- og næringarefnum, hlutverkum þeirra, skortseinkennum og í hvaða matvælum þau eru helst að finna
  • ráðleggingum landlæknis um mataræði og ráðlögðum dagskömmtum um vítamín og steinefni
  • lögum og reglugerðum um aukefni og vörumerkingar matvæla
  • aðferðum til að meta líkamsástand og áhrif megrunarkúra á líkamann
  • næringarþörfum sérstakra hópa og sjúklinga ásamt sérfæði á sjúkrastofnunum
  • næringartöflum og -forritum til að reikna út orku- og næringarinnihald í máltíðum

Leikniviðmið

  • skoða hollustu einstakra fæðutegunda m.t.t. orku- og næringarinnihalds
  • reikna út næringargildi matseðils með næringartöflum/-forritum
  • lesa upplýsingar á umbúðum matvæla
  • nota BMI stuðulinn og ummálsmælingar til að meta líkamsástand
  • kanna eigin neysluvenjur og reikna út næringarþörf sína

Hæfnisviðmið

  • velja sér og sínum fæðu samkvæmt ráðleggingum frá Embætti landlæknis
  • meta niðurstöður næringarforrita á mataræði einstaklings
  • meta hollustu út frá upplýsingum á umbúðum matvæla
  • meta með gagnrýnum hætti upplýsingar um næringu sem koma frá t.d. fjölmiðlum eða af netinu
  • taka rökstudda afstöðu til næringarmála í daglegri umræðu
  • tengja næringarfræðina við daglegt líf
  • útskýra munnlegar og myndrænar ráðleggingar um mataræði og næringarefni fyrir öðrum
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?