Fara í efni

LISA3TB05 - Textíl-, búninga- og hönnunarsaga

búningasaga, hönnunarsaga, textílsaga

Einingafjöldi: 5
Þrep: 3
Forkröfur: LISA2RA05, HÖTE2ET10, HÖTE2FA06, HÖTE2VE06
Í áfanganum fær nemandinn innsýn í textíl-, búninga- og hönnunarsögu mannsins frá upphafi fram á okkar daga. Nemandinn fær einnig innsýn í verkmenningu mannsins í ólíkum menningarsamfélögum frá tímum pýramídanna og fram á 21. öldina. Lögð er áhersla á að hann geri sér grein fyrir hvaða áhrif gróður og veðurfar hefur á gerð bygginga, fatnaðar og annarra hluta sem ætlaðir eru til almennra nota í manngerðu umhverfi. Nemandinn greinir helstu tímabil, menningu, áhersluþætti og efnisnotkun. Kennsluhættir áfangans byggja á því að nemandinn sé virkur, sjálfstæður og skapandi í þekkingarleit, upplýsingaöflun og fremsetningu verkefna og hugmyndabókar.

Þekkingarviðmið

  • því hvernig hönnun hverskonar er nátengd félagslegum veruleika á hverjum stað á hverjum tíma
  • textíl-, búninga- og hönnunarsögu
  • helstu hugtökum og aðferðum í textíl s.s. tauþrykki, vefnaði, myndvefnaði, prjóni, fatasaumi,útsaumi og frjálsum textíl
  • fagurfræðilegu, siðferðilegu og samfélagslegu hlutverki hönnuða, handverksfólks og listamanna
  • samfélagslegu og alþjóðlegu samhengi og tækniþróun í textíl-, búninga- og hönnunarsögu

Leikniviðmið

  • nota ímyndunarafl, innsæi og tilfinningar við þekkingarleit, gagnasöfnun og framsetningu verkefna
  • beita frumkvæði og skapandi nálgun í verkefna-, heimilda- og dagbókarvinnu í meginviðfangsefnum áfangans
  • tjá sig á skýran, ábyrgan, fjölbreyttan, gagnrýninn og skapandi hátt um eigin verkefni hvort sem þau eru skrifleg eða verkleg

Hæfnisviðmið

  • sýna áræðni í framsetningu og túlkun verkefna
  • taka þátt í verkefnavinnu, bæði skriflegri og verklegri, með sameiginlegt markmið hópsins að leiðarljósi
  • kynna verkefni og setja fram niðurstöður sínar á fjölbreyttan hátt
  • fjalla um verkefni sín í textíl-, búninga- og hönnunarsögu - skrifleg, verkleg eða unnin í nýmiðlum og staðsetja þau í samfélagslegu, menningarlegu og sögulegu samhengi
  • skilja hvaða áhrif veðurfar, stjórnmál, tækniframfarir og tíska hefur á manninn
  • miðla kunnáttu sinni á fjölbreytilegan hátt: munnlega, skriflega, verklega og/eða með nýmiðlum
  • skilja hvaða áhrif gróður og veðurfar hefur á gerð textílefna, fatnaðar, bygginga og annarra hluta sem ætlaðir eru til almennra nota í manngerðu umhverfi
  • rökstyðja samfélagslegt, menningarlegt og efnahagslegt gildi textíls og textíllistar, búninga- og fatahönnunar og hönnunar hverskonar
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?