Fara í efni

ÍSLE3VT10 - Bókmenntir og menning í nýju ljósi

bókmenntasaga, stefnur í listum og menningu, valdir bókmenntatextar

Einingafjöldi: 10
Þrep: 3
Forkröfur: 10 einingar á 2. þrepi
Í áfanganum er fjallað um íslenskar bókmenntir og bókmenntasögu frá siðaskiptum til 21. aldar og tengsl þeirra við evrópskar bókmenntir. Stuttlega er farið yfir bókmenntir fyrri alda en megináherslan verður þó lögð á bókmenntir og bókmenntasögu 20. og 21. aldar, nýja strauma og stefnur og ólíkar birtingarmyndir bókmenntanna. Unnin verða ýmis konar valverkefni þar sem lögð verður rík áhersla á fjölbreyttar vinnuaðferðir, sjálfstæð vinnubrögð, skilvirka þekkingarleit, kunnáttu í meðferð og frágangi heimilda og skapandi hugsun og frumkvæði við úrvinnslu og skilaform verkefna.

Þekkingarviðmið

  • íslenskri bókmenntasögu frá siðaskiptum til 21. aldar
  • helstu stefnum í bókmenntum frá siðaskiptum til 21. aldar og þeim heimspekistefnum, hugmyndafræði og viðhorfum til hlutverks bókmennta sem þar birtast
  • ýmsum lykilverkum íslenskra og evrópskra bókmennta frá áðurnefndum tímabilum
  • tengslum íslenskra bókmennta við evrópska menningu, bókmenntir og bókmenntastefnur
  • mismunandi birtingarformum bókmennta og lista
  • grunnhugtökum í bókmenntafræði og beitingu þeirra
  • notkun heimilda og hjálpargagna í tengslum við verkefnavinna
  • frágangi og skráningi heimilda
  • grundvallarreglum við byggingu og uppsetningu ritsmíða

Leikniviðmið

  • lesa bókmenntatexta frá siðaskiptum til dagsins í dag, sér til gagns og gamans
  • greina bókmenntatexta frá ýmsum tímum og fjalla um inntak þeirra
  • beita algengum stílbrögðum í tal- og ritmáli
  • skilja lykilhugtök og mismunandi sjónarmið
  • draga saman og nota á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum og meta áreiðanleika þeirra
  • rita heimildaritgerð þar sem beitt er gagnrýnni hugsun við úrvinnslu
  • tjá rökstudda afstöðu við ýmsar kringumstæður, útskýra sjónarmið og taka virkan þátt í málefnalegum umræðum til að komast að vel rökstuddri niðurstöðu
  • ganga frá heimildaverkefnum og -ritgerðum með viðurkenndum hætti
  • flytja af öryggi lýsingar og kynningar á verkefnum sínum, hver fyrir sig og með öðrum

Hæfnisviðmið

  • skilja, greina og tengja saman bókmenntatexta frá ólíkum tímum
  • skrifa skýran, vel uppbyggðan og grípandi texta
  • taka þátt í málefnalegum umræðum, tjá afstöðu sína og efasemdir um efnið og komast að rökstuddri niðurstöðu
  • greina aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta
  • átta sig á samfélagslegum skírskotunum, duldum boðskap og hugmyndum
  • flytja kynningar á verkefnum af öryggi
  • beita skýru, vönduðu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
  • velja ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
  • vinna skapandi verkefni í tengslum við námsefnið og sýna frumkvæði í verkefnavali og úrvinnslu
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?