Fara í efni

ÍSAN1MR05 - Íslenska sem annað mál

framsaga, lestur, málnotkun, ritun

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Forkröfur: ÍSAN1OF05
Unnin verða ritunarverkefni af ýmsu tagi; frásagnir, útdrættir og stuttar ritgerðir. Einnig lesa nemendur og vinna með ýmis konar texta; úr dagblöðum, fréttamiðlum, smásögur og ljóð. Farið verður í undirstöðuatriði íslenskrar beygingarfræði, setningafræði og ritunar. Áfram er lögð áhersla á hópefli, samvinnu og samskipti og að nemendur verði sjálfbjarga úti í samfélaginu t.d. með því að kenna þeim að nota almenningssamgöngur. Lögð er áhersla á að nemendur viti hvaða leiðir þeim eru færar í námi og að þeir þekki íslenska framhaldsskólakerfið, tækifæri og mögulegar hindranir. Farið er í heimsóknar- og kynnisferðir á ýmsar stofnanir samfélagsins s.s. heilsugæslu, Amtbókasafnið, Hof, Alþjóðastofu, Rósenborg, Sjónlistamiðstöðina og önnur lista- og menningarsöfn. Nemendum er kynnt íþrótta- og tómstundastarf í nærsamfélaginu.

Þekkingarviðmið

  • íslenskri málnotkun, mæltu og rituðu íslensku máli
  • ritun mismunandi texta
  • mikilvægi tjáningar í samskiptum
  • helstu stofnunum í nærsamfélaginu og tengingu þeirra við menningu
  • starfsemi stofnanna sem veita þjónustu til þeirra sem hafa annað móðurmál en íslensku
  • námsleiðum sem íslenska framhaldsskólakerfið býður uppá

Leikniviðmið

  • lesa texta, túlka ljóð og vinna verkefni tengd þeim
  • skrifa ýmsar tegundir texta á samfelldu máli
  • draga saman aðalatriði í textum
  • rita einfalda stutta texta og sögur
  • skoða námsframboð og námsleiðir og tengja sínu áhugasviði
  • leita sér aðstoðar með einfaldar fyrirspurnir til stofnanna

Hæfnisviðmið

  • meta sjálfan sig og setja sér markmið m.t.t. áhugasviðs og útbúa námsáætlun fyrir nám sitt
  • auka almenna færni í íslensku máli
  • nýta sér mælt mál og ritað í daglegu máli
  • lesa ýmsa texta svo sem fréttir í dagblöðum og á netinu
  • tjá sig munnlega og skriflega
  • panta sér tíma hjá heimilislækni, fara á söfn og leitað sér upplýsinga um íþrótta- og félagsstarfi í nærsamfélaginu
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?