Fara í efni

HRÖR2VÞ03 - Hreinlætis- og örverufræði

Hreinlætis- og örverufræði fyrir verslunarþjóna

Einingafjöldi: 3
Þrep: 2
Í áfanganum fá nemendur fræðslu og þjálfun í hreinsun umhverfis, tækja og áhalda. Þeir læra að þekkja og meðhöndla algengustu ræstiefni og sótthreinsiefni með tilliti til efnafræðilegrar uppbyggingar og umhverfisverndar. Nemendur læra að gera hreinlætisáætlanir og eru þjálfaðir í að fylgja þeim eftir. Fjallað er um innra eftirlit, kennt um aðferðir við greiningu áhættuþátta og mikilvægra eftirlitsstaða. Nemendur fá fræðslu um mikilvægi þess að halda vinnusvæði og búnaði hreinum. Kynntar eru gildandi öryggisreglur um aðbúnað og hollustuhætti á vinnustöðum. Áhersla er lögð á mikilvægi hreinlætis til að koma í veg fyrir matarsjúkdóma og ábyrgð matvælaframleiðenda í því sambandi. Fjallað verður um gerla, veirur, ger- og myglusveppi og almenn lífsskilyrði örvera.

Þekkingarviðmið

  • þeim atriðum sem skipta mestu máli varðandi persónulegt og almennt hreinlæti á vinnustað ,
  • hreinsiáætlunum og þörfinni fyrir þær,
  • eiginleikum helstu hreinsiefna og viti hvernig þau eru notkun,
  • ákvæðum laga og reglugerða um matvælaeftirlit og hollustuhætti við framleiðslu og dreifingu matvæla,
  • mikilvægi hreinlætis og þrifnaðar í matvælaframleiðslu,
  • lífsskilyrðum, fjölgun og dreifingu örvera og þeim aðferðum sem beitt er til að fyrirbyggja skaðleg áhrif af þeirra völdum,
  • ábyrgð starfsfólks í matvæla- og veitingagreinum að koma í veg fyrir matarsjúkdóma.

Leikniviðmið

  • fylgja fyrirmælum um persónlegt og almennt hreinlæti á vinnustað,
  • fylgja hreinsiáætlunum eftir og viðhalda þeim,
  • beita fyrirbyggjandi aðgerðum til að koma í veg fyrir skoðaleg áhrif sem hlotist geta af fjölgun og dreifingu örvera í matvælum.

Hæfnisviðmið

  • meðhöndla matvæli á vinnustað í samræmi við þá starfshætti sem um það gilda, m.a. með hliðsjón af lögum og reglugerðum og íslenskri matvælalöggjöf.
Nánari upplýsingar á námskrá.is
Getum við bætt efni síðunnar?