Fara í efni  

Auglýsing um sveinspróf

Sveinspróf í eftirtöldum iðngreinum verða haldin í janúar, febrúar og mars ef næg þátttaka næst

  • Í matreiðslu, framreiðslu, bakaraiðn og kjötiðn í janúar 2021. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2020
  • Í byggingagreinum í janúar 2021. Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2020
  • Í vélvirkjun í febrúar – mars 2021. Umsóknarfrestur er til 15. desember 2020
  • Í snyrtifræði í febrúar – mars 2021. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2021
  • Í bifvélavirkjun í janúar – febrúar 2021. Umsóknarfrestur er til 1. desember 2020
  • Í hársnyrtiiðn í febrúar – mars 2021. Umsóknarfrestur er til 4. janúar 2021.

Nánari dagsetningar verða birtar á heimasíðu IÐUNNAR fræðsluseturs um leið og þær liggja fyrir. Með umsókn skal leggja fram afrit námssamnings, lífeyrissjóðsyfirlit og burtfararskírteini með einkunum eða staðfestingu skóla á því að nemi muni útskrifast í desember 2020.

Kostnaður próftaka s.s. efniskostnaður er mismunandi eftir iðngreinum.

Umsóknareyðublöð má nálgast á vef og á skrifstofu: IÐAN - fræðslusetur, Vatnagörðum 20, 104 Reykjavík, sími: 590 6400, netfang: idan@idan.is

 


Getum við bætt efni síðunnar?

VERKMENNTASKÓLINN Á AKUREYRI

Skrifstofa VMA er opin alla virka daga frá kl. 08:00 - 15:00, nema föstudaga frá kl 08:00-13:00.