Verkmenntaskólinn á Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Nám að loknu námi í VMA

Við útskrift úr VMA hefur þú aflað þérundirstöðumenntunar sem er góður undirbúningur fyrir áframhaldandi nám í háskólum eða sérskólum. Möguleikarnir eru nær óþrjótandi og það sem takmarkar helst er skortur á hugmyndum og upplýsingum. Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma í að skoða úrvalið og vinna umsóknir vel.

NÁM Á ÍSLANDI

Heimasíður flestra skóla finnur þú á: www.byrja.is (undir menntun og skólar)
www.mennt.is
www.leit.is(undir skólar).

Á heimasíðum skólanna eru ýtarlegar upplýsingar um námsframboð, inntökuskilyrði og uppsetningu námsins.

Á www.idan.is er að finna upplýsingar um námsframboð fjölmargra skóla og starfslýsingar.

NÁM ERLENDIS

UMSÓKNIR Í ERLENDA SKÓLA

Umsóknafrestur er mismunandi eftir löndum, innan hvers lands og eftir skólum. Það er því æskilegt að hefja könnun á námsmöguleikum allt að ári áður en sótt er um skóla. Fyrsta skrefið er að nálgast heimilisföng skóla, umsóknareyðublöð sem og nánari upplýsingar um viðkomandi nám - þá er að senda inn umsóknir. Gott er að sækja um nokkra skóla til að eiga möguleika á vali en einnig til að tryggja að fá skólavist því ekki er víst að jákvætt svar fáist frá skólum sem sótt er um.

GÖGN SEM ÞURFA AÐ FYLGJA

Auk umsóknareyðublaða eru ýmis gögn sem skólar vilja fá frá umsækjendum, t.d. staðfest prófskírteini þýtt yfir á viðkomandi tungumál, meðmæli frá fyrri kennurum og jafnvel læknis- og fæðingavottorð. Ef stúdentsprófi er ólokið er hægt að fá staðfestingu á ætluðum námslokum hjá skólanum. Sumir skólar fara fram á samræmd próf, t.d. TOEFL prófið sem er enskupróf fyrir erlenda námsmenn sem sækja um nám í bandarískum háskólum.

INNTÖKUSKILYRÐI OG TAKMARKANIR

Inntökuskilyrði er oftast stúdentspróf en einnig gera sumir skólar kröfur um að nemendur hafi útskrifast af tiltekinni braut sem undirbýr þá undir viðkomandi framhaldsnám. Starfsreynsla sem tengist áhugasviði nemandans getur aukið líkur á inntöku í viðkomandi nám og skóla. Nemendur sem hafa stúdentspróf, starfsreynslu og góð meðmæli eiga mestu möguleikana á því að komast í góða skóla.

SKÓLAGJÖLD OG STYRKIR

Í flestum Evrópulöndum eru skólarnir ríkisreknir og aðeins krafist innritunargjalda en ekki skólagjalda. Undantekning er þó á þessu í Bretlandi. Flestir skólar í Bandaríkjunum og Kanada krefjast skólagjalda og geta þau verið há. LÍN veitir aukalán vegna skólagjalda í sumar námsgreinar en þetta þarf að athuga sérstaklega. Erlendir styrkir eru yfirleitt ekki veittir nema til framhaldsnáms eða rannsókn.

FJÁRMÁL

Fyrsti mánuðurinn í skóla erlendis getur reynst erfiður og því er gott að hafa eitthvert stofnfé til ráðstöfunar. Mikilvægt er að tryggja lánshæfni náms hjá LÍN áður en haldið er utan. Einnig er nauðsynlegt að kynna sér sjúkratryggingu og læknisþjónustu í viðkomandi landi og huga vel að öllum tryggingarmálum.

TUNGUMÁL - NÁMSKEIÐ

Nemendum er ráðlagt, jafnvel þótt þeir telji sig færa í viðkomandi máli, að sækja tungumálanámskeið í upphafi náms. Sjá reglur LÍN um lánveitingu fyrir slíku námi. Samræmd próf sem krafist er þegar sótt er um til bandarískra skóla, t.d. TOEFL og GRE er hægt að taka hérlendis. Hafa ber í huga að sum þessara prófa eru aðeins hægt að taka einu sinni eða tvisvar á ári og því þarf að huga að þeim tímanlega.

HÚSNÆÐISMÁL - FÉLAGSLEGAR AÐSTÆÐUR

Víða eru stúdentagarðar á vegum skóla. Námsfólki er ráðlagt að sækja um vist á garði fyrst í stað. Ef sótt er um húsnæði á almennum markaði þarf að leita upplýsinga í viðkomandi skólum og athuga auglýsingar í hverfis- og dagblöðum. Skólarnir veita oft upplýsingar um barnaheimili eða reka þau sjálfir, æskilegt er að afla allra slíkra upplýsinga áður en haldið er utan.

GAGNLEGAR ÞJÓNUSTUSTOFNANIR

ALÞJÓÐASKRIFSTOFA HÁSKÓLASTIGSINS (www.ask.hi.is)

Veitir upplýsingar um nám og skóla erlendis og nemendaskipti á háskólastigi.

Neshaga 16, 107 Reykjavík
Sími: 525 4311 Fax: 525 5850
Netfang:ask@hi.is

FULBRIGHT STOFNUNIN (www.fulbright.is)Starfsemi Fulbright-stofnunarinnnar felst í því að efla samskipti Íslands og Bandaríkjanna á sviði mennta og rannsókna. Hlutverk stofnunarinnar er : (1)Að veita íslenskum og bandarískum námsmönnum og fræðimönnum styrki til náms, kennslu og rannsókna. (2) Að veita þeim sem eru að huga að námi í Bandaríkjunum upplýsingar og ráðleggingar um nám og námsmöguleika.

Laugavegi 59, 3. hæð, 101 Reykjavík
Sími: 551-0860
Netfang: adviser@fulbright.is

SAMBAND ÍSLENSKRA NÁMSMANNA ERLENDIS (www.sine.is)

Meginhlutverk SÍNE er að gæta hagsmuna félagsmanna sinna og vera tengiliður þeirra við þau stjórnvöld sem koma að kjörum SÍNE félaga hér á landi. Á síðustu árum hefur þjónustan við tilvonandi félagsmenn, þ.e. námsmenn á leið út, vaxið mjög mikið og er orðinn stór þáttur í starfsemi félagsins. SÍNE gefur út bókinaNám erlendis sem er rit um hvert er best að snúa sér ef ætlað er í nám erlendis.

Hverfisgötu 105, 101 Reykjavík
Sími: (+354) 552-5315
Fax: (+354) 552-5370
Netfang:sine@sine.is

AFS - ALÞJÓÐLEG FRÆÐSLA OG SAMSKIPTI (www.afs.is)

AFS eru alþjóðleg fræðslusamtök sem starfa í yfir 50 þjóðlöndum í öllum heimsálfum. Aðalviðfangsefni samtakanna hérlendis eru nemendaskipti unglinga á aldrinum 15-18 ára. Samtökin eru óháð stjórnmálaflokkum og trúfélögum sem og hvers konar hagsmunasamtökum. Markmið AFS eru að auka kynni og skilning milli þjóða heims og fólks af ólíkum uppruna, víkka sjóndeildarhring ungs fólks og auka menntun þess.

VISTAXCHANGE (www.vistaxchange.is)

Býður upp á nám og störf erlendis, s.s. málanám, sérskóla, au-pair, sumarvinnu, sjálfboðastörf og starfsþjálfun.

ERLEND SENDIRÁÐ

Sendiráð og ræðismenn erlendra ríkja veita einnig upplýsingar um nám í viðkomandi landi.

  • Bandaríska sendiráðið, Laufásvegi 21, sími:562-9100,www.usa.is
  • Breska sendiráðið, Laufásvegi 31, sími 550-5100,www.britishembassy.is
  • Danska sendiráðið, Hverfisgötu 29, sími 575-0300,www.mmedia.is
  • Finnska sendiráðið, Túngötu 30, sími 510-0100,www.finland.is
  • Franska sendiráðið, Túngötu 22, sími 551-5513www.ambafrance.is
  • Japanska sendiráðið, Laugavegi 182, sími: 510-8600
  • Kanadíska sendiráðið, Túngötu 14, sími: 575-6500,www.canada.is
  • Kínverska sendiráðið, Víðmel 29, sími: 552-6751,www.china-embassy.is
  • Norska sendiráðið, Fjólugötu 17, sími 520-0700,www.noregur.is
  • Rússneska sendiráðið, Garðastræti 33, sími:551-5156
  • Sænska sendiráðið, Lágmúla 7, sími 520-1230,www.swedenabrod.com
  • Þýska sendiráðið, Laufásvegi 31, 530-1100

AÐRAR GAGNLEGAR VEFSLÓÐIR UM NÁM ERLENDIS

Rannsóknarþjónusta Háskóla Íslanda, www.rthj.hi.is

Starfsemi Rannsóknarþjónustunnar er í meginatriðum þríþætt: Í fyrsta lagi er veitt margvísleg þjónusta við alþjóðlegt rannsókna- og menntasamstarf. Í öðru lagi er stuðlað að hagnýtingu rannsóknaniðurstaðna. Í þriðja lagi rekur stofnunin fyrirtæki tengd Háskóla Íslands og önnur verkefni.

www.ploteus.net

Veitir góðar upplýsingar um nám í Evrópu og aðrar hagnýtar upplýsingar sem þarf að hafa í huga þegar fólk flytur á milli landa.

www.hitthusid.is

Hitt húsið er menningar- og upplýsingamiðstöð ungs fólks og þar er hægt að fá ýmsar upplýsingar um möguleika ungs fólks í Evrópu. Skrifstofur Eurodesk og UFE á Íslandi eru staðsettar í Hinu húsinu.

www.estia.educ.goteborg.se

Gagnabanki um nám, störf og vinnumarkaði í Evrópu.

www.onthemove-eu.hi.is

Veitir upplýsingar um möguleika á námi og starfi erlendis.

www.norddjob.net

Norddjobb býður fólki á aldrinum 18-26 ára sumarvinnu á Norðurlöndum.

www.eures.dk

EURES - er dönsk vinnumiðlun fyrir alla Evrópu.

www.vidar.dk

Leitarvefur fyrir símenntun í Danmörku

www.rthj.hi.is/page/jobs

Upplýsingar um færnikröfur starfa sem inniheldur starfslýsingar eða hvað felst í viðkomandi starfi.

www.bls.gov/oco/

Occupational Outlook Handbook innheldur mjög góðar starfslýsingar, s.s. hvað felst í viðkomandi starfi, vinnuaðstæður og hvaða þjálfun og nám þarf fyrir starfið.

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn