Verkmenntaskólinn á Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Markmið og hlutverk

MARKMIÐ NÁMSRÁÐGJAFARINNAR ER:

  •  Að öllum nemendum VMA líði sem best í náminu og skólanum og hver og einn nái góðum árangri í námi og samsvörun sé milli einstaklings og náms- og starfsvals.

HLUTVERK NÁMSRÁÐGJAFAR ER MARGÞÆTT EN HELSTU ÁHERSLUR ERU:

  • Að leiðbeina núverandi og væntanlegum nemendum VMA um val á námi og námsframvindu innan skólans. Námsráðgjafi veitir ráðgjöf og upplýsingar um námið og þá þjónustu innan skólans sem nemendur og almenningur eiga kost á.
  • Að veita einstaklingum og hópum leiðsögn á meðan á námi stendur, ekki síst um bætt vinnubrögð í námi.  Nám í framhaldsskóla gerir kröfur um að nemendur geti unnið sjálfstætt og námsráðgjafi leiðbeinir einstaklingum um hvernig hægt er að tileinka sér góðar vinnuvenjur og að skipuleggja tíma sinn. 
  • Að veita nemendumstuðning og ráðgjöf  í persónulegum málum sem upp geta komið á námstímanum s.s. kvíða, depurð, samskiptavanda, breytingum á högum eða félagslegri einangrun. 
  • Að leiðbeina nemendum um val á námi bæði hérlendis og erlendis að loknu námi við VMA.
  • Að hafa umsjón með málefnum nemenda sem eiga við hamlanir að stríða.
  • Að taka þátt í kynningarstarfi skólans, innan hans sem utan.

 

 

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn