Að leggja snið á efni.
Brjóttu efnið tvöfalt þannig að jaðrarnir liggi saman (ekki algilt) og rangan snúi út. Leggðu fyrst stærstu sniðin og síðan þau minni, sem oft er hægt að koma fyrir á milli þeirra stærri. Athugaðu að öll sniðin komist fyrir áður en þú ferð að klippa. Festu sniðin með títiprjónum og krítaðu saumför og önnur merki.
Gott er að nota reglustikur við beinar línur.
GLEYMDU EKKI AÐ GERA RÁÐ FYRIR SAUMFÖRUM OG ÞRÁÐRÉTTUNNI ÁÐUR EN ÞÚ KLIPPIR EFNIÐ.
Þráðrétta.
Þráðrétta er merkt á sniðum með örvum. Mjög mikilvægt er að leggja sniðin rétt á efnið eftir þeim. Þráðlínan verður alltaf að liggja samsíða þ.e. jafn langt frá jaðrinum á efninu. Aðeins nokkra millimetra munur efst á buxnaskálm er ef til vill orðin að sentimeter að neðan og þá fellur buxnaskálmin skakkt.
ÁFANGALÝSING.
Lögð er áhersla á máltöku og vinnu með tilbúin snið og gerðar einfaldar sniðbreytingar. Nemendur læra á saumavél og möguleika hennar. Kennt er að leggja snið á efni og merkja fyrir saumförum. Saumaðar eru prufur og einfaldar flíkur. Lögð er megináhersla á að nemendur temji sér sjálfstæð og vönduð vinnubrögð.
Kennslumarkmið.
Að námi loknu á nemandi að geta ákvarðað rétta sniðstærð eftir líkamsmálum, notfært sér tískublöð og tilbúin snið, lagt snið á efni, sniðið og saumað einfalda flík. Jafnframt á nemandi að hafa vald á möguleikum saumavélar, tólum og tækjum sem nauðsynleg eru við saumaskap og geta unnið eftir leiðbeiningum og vinnuteikningum.
Prufur:
Î lok annar skila nemendur 6 prufum ásamt verklýsingum í möppu.
Þrjár flíkur.
Fyrsta flíkin er buxur. Nemendur finna snið í blaði, sníða og sauma. Jafnframt er unnið í prufum sem tengjast buxum.
Flík tvö. Frjálst verkefni, nemendur velja sér flík upp úr blaði, sníða og sauma. Leyfilegt er að breyta sniðum.
Lokaverkefni. Pils eftir eigin hugmynd, nemendur læra að teikna grunnsnið af pilsi. Teikna útlitsteikningu og útfæra snið og sauma í prufuefni og að lokum í efni sem nemandinn velur sjálfur.
MÁLTAKA:
Tilgangur með máltöku er að geta valið rétta sniðstærð. Það eru þrjú aðalmál sem gera það.
1. Yfirvídd mælt yfir brjóstin, undir handleggina og lárétt yfir bakið.
2. Mittisvídd: kringum mittið. Málið skal vera í samræmi við málið á pils eða buxnastreng.
3. Mjaðmavídd. U. þ. b. 20 cm fyrir neðan mitti, lárétt kringum breiðasta hlutann.
hugarkortfat103.vym | 2009-10-18 | vym 1.12.2 |