Verkmenntaskólinn á Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Skólanámskrá

Verkmenntaskólinn á Akureyri 

Starfsfólk leggur kapp á að Verkmenntaskólinn á Akureyri sé góður skóli fyrir alla nemendur sem hann sækja.

    Hjalti Jón Sveinsson skólameistari
  • Að kappkostað sé að koma til móts við hvern og einn nemenda eftir því sem unnt er.
  • Að lögð sé áhersla á að glæða áhuga nemenda á hverju því námsefni sem lagt er fyrir þá.
  • Að námsumhverfi nemenda sé gert eins aðlaðandi og áhugavekjandi og kostur er.
  • Að skólinn bjóði upp á bestu fáanlega kennslu og búi kennurum sínum vinnuskilyrði í samræmi við það.
  • Að kappkostað sé að kennurum sé boðið upp á endurmenntun sem megi verða til þess að bæta kennsluhætti og gera þeim starfið ánægjulegra.
  • Að skólinn bjóði upp á sem fjölbreyttast nám á bóklegu og verklegu sviði. Í þeim efnum séu hafðar til hliðsjónar þarfir atvinnulífs á svæðinu.
  • Að boðið sé upp á sem fjölbreyttasta kennsluhætti og námsmat verði í samræmi við það.
  • Að skólinn leggi áherslu á heilbrigt og þróttmikið félagslíf nemenda um leið og unnið sé markvisst að forvörnum.
  • Að samfélag skólans sé jákvætt og að eftirsóknarvert sé að starfa innan þess.

Hjalti Jón Sveinsson
Skólameistari

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn