Akureyri, 27. mars 2008
Ágætu foreldrar.
Foreldrafélag VMA er nú á þriðja starfsári sínu. Haldnir hafa verið fundir mánaðarlega þangað sem komið hafa foreldrar sem tóku að sér að sitja í stjórn þetta skólaár. Fundina hafa heimsótt ýmsir starsfmenn skólans, eins og námsráðgjafar, félagsmálafulltrúar o.fl. auk þess sem skemmtilegur fundur var haldinn með stjórn nemendafélagsins Þórdunu. Geta má þess að fundurinn með námsráðgjöfum var sérstaklega auglýstur í Dagskránni, en því miður skilaði það litlum árangri, en þó.
Rödd foreldra er okkur stjórnendum og starfsfólki mikilvæg og oft hafa komið fram ábendingar sem okkur hefur þótt sjálfsagt og nauðsynlegt að verða við. Hagsmunir nemenda eru okkur öllum efst í huga.
Þeir foreldrar sem hér eiga hlut að máli eru; Hlín Bolladóttir, formaður, Helgi Már Pálsson, ritari, Guðrún Benediktsdóttir, Inga Matthíasdóttir, Inga Vestmann, Hafsteinn Sigfússon, Ragnhildur Sverrisdóttir og Sólrún Stefánsdóttir.
Dagana 2. og 3. apríl verða haldnir svokallaðir „opnir dagar“ í skólanum. Að lokinni hefðbundinni kennslu fyrstu tvo tímana verður skólastarfið brotið
upp og sitthvað verður á dagskrá. Nemendur eru hvattir til að mæta og taka þátt í sem flestum viðburðum bæði innan skólans og utan og er dagskráin afar fjölbreytt.
Foreldrar eru sérstaklega hvattir til þess að reka inn nefið eigi þeir þess nokkurn kost; hvort sem er til að fylgjast með eða taka þátt í einhverju af því sem bryddað verður upp á.
Fulltrúar foreldra verða til staðar og með heitt á könnunni, miðvikudaginn 2. apríl milli 10 og 12, í M 01, sem er kennslustofa í miðrými nýbyggingar og verður hún sérstaklega merkt. Þar verður meðal annars rætt um forvarnir í skólanum og meðal ungs fólks almennt. Í heimsókn koma Þorsteinn Pétursson, forvarnarfulltrúi Lögreglunnar á Akureyri, Sigmundur Magnússon, húsbóndi á heimavist MA og VMA og Karen Malmquist, forvarnarfulltrúi skólans.
Verið ófeimin við að koma í heimsókn!
Með von um að sjá ykkur sem flest,
Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari
Moodle



