Verkmenntaskólinn á Akureyri

Verkmenntaskólinn á Akureyri

REK 113

Rekstrarhagfræði 1136 - vorið 2008.

Kennsluáætlun - Stundaskrá Hilmars - Dagatal 2008

Velkomin(-n)
Þessi vefsíða er ætluð nemendum mínum í Rekstrarhagfræði 113 í VMA. Öðrum er þó velkomið að nota það sem hér er.

Markmið:
Vika 9
, Markmið: Framleiðsla hefst, undirbúningur fyrir vörumessuna, 28 - 29 mars nk. Vefsíðugerð í vinnslu.

Vika 8, Markmið: Túlka markaðskannanirnar, setja sig í samband við meðframleiðendur og setja markmið varðandi framleiðslu.

Vika 7, Markmið: Vinna við viðskiptaáætlunina, klára að setja markaðskannanir í Excel.

Vika 6, Markmið: Fínslípa hugmyndirnar að vörunum, hefja vinnu við viðskiptaáætlunina, fjármagna fyrirtækin með sölu hlutabréfa.

Vika 5, markmið: Ljúka vali á vöru fyrirtækisins. Velja nöfn fyrirtækjanna, huga að vörumerki. Hugað verður að hlutabréfasölu.


Námsmat:
Frammistaða og vinnubrögð nemanda/starfsmanns fyrirtækisins við að leysa þau verkefni sem hann tekst á hendur innan þess verða vegin og metin. Allir mælikvarðarnir (fyrir utan mætingu) eru huglægir enda erfitt að koma við öðrum mælikvörðum.
Horft verður m.a. til:
- Athafnasemi
- Frumkvæði
- Hugmyndaauðgi
- Skilvirkni
- Samkvæmni
- Eftirfylgni
- Mætingar og stundvísi
- Hæfni til samskipta (framkoma og þokki) innan og utan fyrirtækisins


Hilmar Friðjónsson
Kennari
 

Nýjustu fréttir

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn