|
Nemendur sem lokið hafa starfsnámsbraut geta lokið stúdentsprófi með eftirfarandi hætti:
- Með því að láta meta starfsnámið inn á stúdentsbrautirnar (félagsfræðibraut, málabraut og
náttúrufræðibraut) og ljúka síðan þeim fögum sem þá standa eftir. Sérgreinar starfsnámsbrautar má meta sem
kjörsviðsgrein upp á 12 einingar auk þess sem nemendur fá 12 einingar metnar sem frjálst val.
- Nemendur á starfsnámsbrautum eiga kost á viðbótarnámi til undirbúnings námi á háskólastigi. Slíku námi
lýkur með stúdentsprófi sem er samræmt í tilteknum greinum skv. ákvæðum í reglugerð. Stúdentsprófið eitt og
sér tryggir ekki aðgang að öllu námi á háskólastigi hvorki hér á landi né í öðrum löndum. Einstakir
háskólar eða háskóladeildir setja ýmsar sérkröfur sem nemendur þurfa einnig að uppfylla og í sumum tilvikum þurfa nemendur
að gangast undir inntökupróf. Það er því mikilvægt að nemendur sem stefna að inngöngu í tiltekinn skóla á
háskólastigi afli sér upplýsinga um þær kröfur sem viðkomandi skóli gerir um undirbúning.
Til þess að fá starfsnám auk viðbótarnáms viðurkennt til stúdentsprófs skulu nemendur hafa lokið a.m.k. 2ja ára
starfsnámi. Það er þó ekki áskilið að nemendur í löggiltum iðgreinum hafi lokið sveinsprófi. Mismunandi kröfur eru
gerðar til nemenda sem lokið hafa 2ja ára námi og hinna sem lokið hafa 3ja ára eða lengra námi.
Prentvæn útgáfa
Að loknu a.m.k. þriggja ára starfsnámi
Þeir nemendur sem lokið hafa a.m.k. þriggja ára starfsnámi geta lokið viðbótarnámi sínu með eftirfarandi hætti:
- skipulagt sjálfir í samráði við hlutaðeigandi framhaldsskóla miðað við skilgreind markmið um áframhaldandi nám á
háskólstigi, eða
- lokið námi í eftirtöldum greinum þannig að heildarnám þeirra verði eins og tilgreint er í töflunni:
| 15 einingar |
| 12 einingar |
| 6 einingar |
| Fyrra nám í þessum greinum kemur til frádráttar. |
| 12 einingar* |
*Nemendur geta valið milli a) erlendra tungumála, b) náttúrufræðigreina og stærðfræði eða c) samfélagsgreina, 12 ein. Miða
skal við að nám í tiltekinni námsgrein verði ekki minna en 9 ein. samtals. Stærðfræði er þó undanskilin frá 9 ein. reglunni.
Fyrra nám kemur ekki til frádráttar
Þær starfsnámsbrautir í VMA sem þetta á við um eru: Húsasmíði, rafvirkjun, stálsmíði, vélvirkjun,
sjúkraliðabraut, matartæknabraut og vélstjórnarbraut 3. stig.
Að loknu tveggja ára starfsnámi
Þeir nemendur sem lokið hafa tveggja ára starfsnámi geta lokið viðbótarnámi sínu með eftirfarandi hætti:
- skipulagt sjálfir í samráði við hlutaðeigandi framhaldsskóla miðað við skilgreind markmið um áframhaldandi nám á
háskólstigi, eða
- lokið námi í eftirtöldum greinum þannig að heildarnám þeirra verði eins og tilgreint er í töflunni:
| 15 einingar |
| 15 einingar |
| 6 einingar |
| 9 einingar |
| 6 einingar |
| 8 einingar |
Fyrra nám í þessum greinum kemur til frádráttar.
Einnig skulu nemendur bæta við sig námi í; |
| 12 einingar |
| 15 einingar |
Fyrra nám í þessum námsgreinum kemur ekki til frádráttar. Nám í námsgrein skal ekki verða minna en 9 einingar samtals (fyrra
nám + viðbótarnám). Saga og stærðfræði eru þó undanskyldar frá 9 eininga reglunni.
Námsbrautir í VMA sem undir þetta ákvæði falla eru: Málmiðngreinar, fyrri hluti, vélstjórnarbraut 2. stig, tölvubraut, 2. stig,
íþróttabraut, viðskiptabraut.
Prentvæn útgáfa
|