|
eins árs nám.
|
|---|
Fyrsta námsári er skipt í AN1 og AN1B:
ALMENN BRAUT 1 AN1
Almenn braut AN1 er eins árs námsbraut fyrst og fremst ætluð nemendum sem ekki hafa náð þeim árangri í grunnskóla sem þarf til
þess að innrita sig á aðrar námsbrautir í framhaldskóla. Nám á brautinni miðar að því að bæta stöðu
nemenda í bóklegum greinum, kynna þeim náms- og starfsmöguleika og gera þá hæfari til þess að takast á við nám í
framhaldsskóla og störf úti í samfélaginu.
Prentvæn útgáfa Áfangalýsingar
Skólinn bindur námsval á haustönn. Þá fara nemendur í tvo almenna bóknámsáfanga, ýmist 102 eða 193/293 eftir árangri nemanda í grunnskóla. Á vorönn geta nemendur valið meira en allir á AN1 þurfa að taka LKN291, ÍÞR202/212, og UTN292 á vorönn.
Í framhaldi af AN1 í eitt ár er markmiðið að nemandi geti valið sérhæfða námsbraut, oft í framhaldi af kynningaráfanga á ákveðinni verknámsbraut eða bóknám ef áhugi og árangur gefur tilefni til þess. Til þess að nemandi geti skipt um námsbraut þarf hann uppfylla inntökuskilyrði viðkomandi námsbrautar.
| Almennar greinar
|
16 - 19 ein
|
|
| Íslenska
|
ÍSL193, 293, 102/103, 202/203
|
|
| Enska | ENS193, 293, 102/103, 202/203
|
|
| Danska | DAN193, 293, 102, 202
|
|
| Stærðfræði | STÆ193, 293, 102, 122
|
|
| Lífsleikni | LKN192, LKN291
|
3 ein
|
| Íþróttir | ÍÞR102/112, ÍÞR202/212 | 4 ein
|
| Bóknámsáfangar af ýmsum brautum
|
||
| Sérgreinar
|
14 - 16 ein
|
|
| Náms- og starfskynning | NSK196
|
6 ein
|
| Upplýsingatækni | UTN192, UTN292
|
4 ein
|
| Kynningaráfangar verknáms
|
4 - 6 ein
|
|
| Alls | 30 - 35 ein
|
|
| Haustönn | Vorönn |
| ÍSL, ENS, STÆ 193/293 eða 102
|
ÍSL, ENS, DAN, STÆ 193/293 eða 102/202 |
| ÍSL, ENS, STÆ 193/293 eða 102 | ÍSL, ENS, DAN, STÆ 193/293 eða 102/202 |
| NSK196 | Kynning ákv. verknáms 4 - 6 ein eða bóklegt
|
| ÍÞR102/112 | ÍÞR202/212 |
| LKN192 | LKN291 |
| UTN192 | UTN292 |
| 16 - 18 ein
|
15 - 17 ein
|
Upprifjunaráfangar
Áfangar með númer 193 og 293 eru upprifjun á efni grunnskóla.
Slíkir áfangar eru til í íslensku, stærðfræði, ensku og
dönsku.
Í íslensku, ensku og dönsku byrja nemendur í 193 áfanga sem upprifjun. Nemandi sem fær einkunnina 5 eða 6 úr 193-áfanga í íslensku, ensku eða dönsku hefur staðið áfangann en þarf að taka viðbótarupprifjun í áfanga 293. Nemandi sem fær einkunnina 7 eða hærri kemst beint í áfanga 1026 (hægferð).
Um upprifjunaráfanga í stærðfræði gildir að þeir nemendur sem eru rétt undir lágmarki úr grunnskóla fara beint í STÆ293 en þeir nemendur sem hafa mjög slakan árangur í grunnskóla eða þurfa að byrja aftur á grunnatriðum í reikningi taka fyrst STÆ193 og síðan STÆ293 áður en þau taka STÆ102.
Moodle



