Verkmenntaskólinn á Akureyri

Hér setur þú lýsinguna á vefnum

Almenn braut blönduð

ALMENN BRAUT BLÖNDUÐ (AN1B)
eins árs nám.

Fyrsta námsári er skipt í AN1 og AN1B:

ALMENN BRAUT BLÖNDUÐ AN1B
Almenn braut blönduð er fyrir nemendur sem stefna á aðrar brautir og vantar mjög lítið upp á námsárangur grunnskóla til að komast þar inn. Þessir nemendur vinna upp það sem á vantar úr grunnskóla en að öðru leyti er námsval þeirra miðað við þá braut sem stefnt er að. Nemendur sem velja AN1B þurfa að taka fram á valblaði á hvaða braut/nám þeir stefna.  Nemendur eru skráðir á AN1B allt fyrsta námsárið og geta fært sig á aðrar brautir eftir það.

 Haustönn  Vorönn
 ÍSL, ENS, DAN, STÆ 193/293
 ÍSL, ENS, DAN, STÆ 193/293 eða 102
 Áfangar af þeirri námsbraut sem
 Áfangar af þeirri námsbraut sem
 nemandi óskaði eftir, eins og hægt er.
 nemandi óskaði eftir, eins og hægt er.
 ÍÞR102/112  ÍÞR202/212
 LKN192  LKN291
 

 15 - 18 ein
 15 - 18 ein

 

Upprifjunaráfangar

Áfangar með númer 193 og 293 eru upprifjun á efni grunnskóla.

Slíkir áfangar eru til í íslensku, stærðfræði, ensku og dönsku.

Í íslensku, ensku og dönsku byrja nemendur í 193 áfanga sem upprifjun.  Nemandi sem fær einkunnina 5 eða 6 úr 193 áfanga í íslensku, ensku eða dönsku hefur staðið áfangann en þarf að taka viðbótarupprifjun í áfanga 293. Nemandi sem fær einkunnina 7 eða hærri kemst beint í áfanga 102 hægferð.

Um upprifjunaráfanga í stærðfræði gildir að þeir nemendur sem eru rétt undir lágmarki úr grunnskóla fara beint í STÆ293 en þeir nemendur sem hafa mjög slakan árangur í grunnskóla eða þurfa að byrja aftur á grunnatriðum í reikningi taka fyrst STÆ193 og síðan STÆ293 áður en þau taka STÆ102.



Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Skrá inn