Mikilvægt er að hver nemandi sé meðvitaður um hvaða þjónusta gagnast honum best. Hann þarf að vera duglegur að prófa sig áfram með mismunandi aðferðir s.s. leturgerð, leturstærð, línubil og nýta sér námsefni á hljóðrænu formi. Sumum finnst gott að nota litaglærur, öðrum að skipta um lit á pappírnum. Nauðsynlegt er að fylgjast vel með í tímum og skoða kennsluáætlun.
Hver og einn þarf að finna út hvað hentar honum hverju sinni.

