NEMENDUR - ATHUGIÐ !
Stofuskipan í prófunum verður birt á auglýsingatöflum í norðuranddyri skólans a.m.k. 20 mínútum fyrir auglýstan próftíma.
PRÓFAREGLUR
- Ef nemandi er veikur í prófi skal hann tilkynna það skrifstofu VMA að morgni prófdags og staðfesta það með
læknisvottorði eins fljótt og unnt er, ella hefur hann fyrirgert rétti sínum til sjúkraprófs.
Skráning í sjúkrapróf fer fram á skrifstofu skólans um leið og læknisvottorði er skilað og skal það gert í síðasta lagi {dagsetning eftir tímasetningu prófa}.
- Nemendum ber að sitja hið minnsta 45 mínútur við verkefni sitt í hverju prófi. Komi nemandi meira en 45 mínútum of seint til prófs, hefur hann glatað rétti sínum til að þreyta prófið.
- Öll meðferð farsíma er stranglega bönnuð á prófstað
- Ef vafi leikur á próftökurétti nemanda, t.d. vegna fjarvista eða hann hefur ekki lokið tilskyldum verkefnum, skal nemandinn ganga úr skugga um rétt sinn hjá kennslustjóra sínum fyrir prófið.
- Nemandi sem fellur í áfanga skal sitja hann aftur.
- Sjúkrapróf eru haldin í tvo daga eftir að reglulegum prófum lýkur. Dagsetningar sjúkraprófa eru birtar um leið og próftafla er birt á hverri önn. Próftafla sjúkraprófa verður birt að kvöldi síðasta prófdags, í norðuranddyri skólans á Eyrarlandsholti, á auglýsingatöflu í miðálmu og á vefsíðu skólans.
- Eftir að sjúkraprófum lýkur er sýnidagur prófa þar sem nemendur geta skoðað prófúrlausnir sínar og talað við kennara um þær. Dagsetning sýnidags er birt um leið og prófatafla er birt á hverri önn.
EINKUNNIR VERÐA BIRTAR Á INNU,
UPPLÝSINGAKERFI FRAMHALDSSKÓLANNA
UPPLÝSINGAR UM EINKUNNIR ERU
EKKI VEITTAR Í GEGNUM SÍMA
MÆTIÐ TÍMANLEGA Í PRÓFIN !

