Markmið og leiðir
Stefna Verkmenntaskólans á Akureyri er að þjóna samfélaginu eins vel og unnt er með því að bjóða fjölbreytt nám og hvetjandi og aðlaðandi námsumhverfi.
Í VMA eru í boði fjölbreyttar námsleiðir og tekið er tillit til aðstæðna og hæfileika nemenda. Þessu marki hyggst skólinn ná með því að:- kappkosta að nám í VMA veiti góða almenna færni og að nemendur fari úr s skólanum jafnt alheimsborgarar og íslenskir þegnar.
- taka við öllum nemendum sem sækja til skólans svo fremi að þeir geti nýtt þær námsleiðir sem eru í boði og aðstæður í skólanum leyfa.
- námsleiðir séu í takt við breytingar á þjóðfélaginu.
- búa nemendur sem best undir áframhaldandi nám og þátttöku í atvinnulífinu.
- nýta þá kosti áfangakerfisins að nemendur geti valið námshraða og samsetningu námsins innan marka námskrárinnar.
- þjónusta atvinnulífið og sjá því fyrir menntuðu starfsfólki á sem flestum sviðum.
- stuðla að því að VMA og fyrirtæki og stofnanir hafi gott samband sín á milli.
- reka öfluga valkosti fyrir nemendur sem ekki sækja dagskóla t.d. með fjarkennslu, fullorðinsfræðslu í formi námskeiða og kvöldskóla eftir þörfum.
Í VMA
er aðlaðandi námsumhverfi í góðum tengslum við samfélagið, þar sem veitt er fjölbreytt þjónusta og leitast við að efla
sjálfsmynd nemenda. Þessu marki hyggst skólinn ná með því að:
- leitast við að sinna þörfum hvers nemanda sem einstaklings með sérstakar þarfir og hæfileika.
- rækta með nemendum og starfsmönnum umburðarlyndi og víðsýni og að þeir læri að meta sjálfa sig og aðra.
- brýna fyrir nemendum góða ástundun og alúð í því sem þeir gera og að skólinn og starfsfólk hans gangi á undan með góðu fordæmi.
- leggja áherslu á listir, verkkunnáttu og heilbrigða lífshætti til jafns við bóklega þekkingu.
- bjóða upp á öfluga ráðgjöf um nám, störf og persónuleg mál fyrir nemendur og aðra sem leita til skólans.
- taka vel á móti öllum þeim sem leita þjónustu innan skólans.
- styðja við félagslíf nemenda.
- leggja áherslu á að nemendur leggi sitt af mörkum í félagslífi og séu sjálfum sér og skólanum til sóma.
- brýna fyrir nemendum starfsmönnum og gestum að ganga snyrtilega um.
- stefna að markvissri kennslu og fjölbreyttum kennsluaðferðum.
- kennsluhættir taki mið af fjölbreyttum nemendahópi og fjölbreyttum námsleiðum.
- í skólanum sé eðlilegur farvegur fyrir umræður um kennsluhætti, bæði fyrir skólann í heild og innan faggreina.
- kennarar og skólinn í heild fylgist vel með nýjungum í kennslugreinum og kennsluaðferðum.
- endurmenntun kennara verði hluti af eðlilegu skólastarfi.
- taka vel á móti nýjum starfsmönnum
- allir starfsmenn séu ráðnir í samræmi við erindisbréf
- styðja félagslíf starfsmanna
- skapa starfsfólki aðlaðandi vinnuaðstöðu
- fylgja öryggisreglum
- uppbygging, breytingar og viðhald húsnæðis taki mið af starfseminni og sé gert í samráði við starfsmenn og nemendur.
- reka öflugt bókasafn þar sem veitt er metnaðarfull þjónusta.
- allir nemendur og starfsmenn hafi aðgang að tölvukerfi skólans.
- leitast við að koma á og viðhalda skýrum leiðum fyrir upplýsingar sem allir hafi greiðan aðgang að.
- upplýsingar um skólann; námið, reglur, stefnu og þjónustu séu aðgengilegar öllum á vefsíðum og í prentuðu máli. Leitast verði við að gera þær líka aðgengilegar á öðrum tungumálum en íslensku.
- auðvelt sé að rata um skólann og skólasvæðið eftir greinilegum merkingum.

