Fara í efni

Ræðir um áhrif nútímalistar á íslenska myndlist

Margrét Elísabet Ólafsdóttir.
Margrét Elísabet Ólafsdóttir.

Margrét Elísabet Ólafsdóttir, lektor í listgreinakennslu við Háskólann á Akureyri, heldur þriðjudagsfyrirlestur í dag, 18. október, kl. 17:00-17:40 í Ketilhúsinu á Akureyri. Yfirskrift fyrirlestursins er Áhrif nútímalistar á íslenska myndlist og myndlistarumræðu í upphafi 20 aldar. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Margrét Elísabet er doktor í list- og fagurfræði frá Parísarháskóla og leggur stund á rannsóknir á íslenskri myndlist. Hún hefur m.a. skoðað hvernig orðræða um myndlist á meginlandi Evrópu barst til Íslands í upphafi 20. aldar og hvaða áhrif hún hafði á íslenska myndlistarumræðu á tímum sjálfstæðisbaráttunnar. Margrét Elísabet hefur starfað sem sýningarstjóri, gagnrýnandi, háskólakennari og blaðamaður.

Fyrirlesturinn er fjórði í röð fyrirlestra á þriðjudögum í vetur. Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, VMA, Myndlistarfélagsins og Háskólans á Akureyri.