Fara í efni

Pípulagnir kenndar á ný eftir langt hlé

Pípulagnir eru nú kenndar í VMA.
Pípulagnir eru nú kenndar í VMA.

Í mörg undanfarin ár hafa pípulagnir ekki verið kenndar við byggingadeild VMA – þar til nú. Á annan tug nemenda er þessa dagana að hefja nám í pípulögnum – sumir hafa til fjölda ára starfað við þetta fag, aðrir ekki. Halldór Torfi Torfason, brautarstjóri byggingagreina, segir að það hafi einfaldlega komið um það ósk úr atvinnulífinu að setja upp nám í pípulögnum og að sjálfsögðu hafi verið brugðist við þeim óskum. Í þeim uppgangi sem hefur verið á síðustu árum í byggingageiranum, eftir mögur ár í kjölfar bankahrunsins, er spurn eftir pípulagningamönnum langt umfram framboðið.

Eins og með aðrar byggingagreinar þurfa nemendur í pípulögnum að hafa lokið grunnnámi byggingagreina fyrstu tvær annirnar.

Eins og greint hefur verið frá hér á heimasíðunni hefur hópur nemenda stundað nám í múrverki á síðasta ári og eru nemendur á lokasprettinum á þessari önn í því námi.

Og til viðbótar stundar nú hópur nemenda nám í málaraiðn. Um er að ræða svokallað lotunám sem þýðir að nemendur taka námið í nokkrum lotum núna á vorönn – jafnhliða vinnu. Þetta nám var sett upp í framhaldi af svokölluðu raunfærnimati sem nemendur gengust undir hjá Iðunni og Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar. Nemendur hafa unnið sem málarar – sumir til fjölda ára – án þess að hafa lokið tilskildu námi til réttinda í faginu. Það breytist með því námi sem þeir nú stunda í VMA.